Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 31. júlí 2021 08:30
Victor Pálsson
Sér Henderson ekki fyrir sér í öðru ensku liði
Mynd: Getty Images
Glen Johnson, fyrrum liðsfélagi Jordan Henderson, telur að miðjumaðurinn muni ekki semja við annað enskt úrvalsdeildarfélag á ferlinum.

Henderson hefur verið orðaður við brottför frá Liverpool í sumar og er Arsenal nefnt til sögunnar.

Henderson hefur unnið bæði Meistaradeildina og deildina með Liverpool en gæti þurft að taka við varahlutverki á næsta tímabili.

Þrátt fyrir það telur Johnson að Henderson muni ekki semja við annað lið í efstu deild en gæti þó reynt fyrir sér erlendis.

„Þekkjandi Henderson eins og ég geri þá mun hann sýna Liverpool tryggð eftir öll þessi sigursælu ár saman svo ég sé hann ekki fyrir mér í öðru liði í úrvalsdeildinni," sagði Johnson.

„Hann hefur í raun afrekað allt sem hægt er hjá Liverpool. Auðvitað er hann enn metnaðarfullur."

„Skref erlendis gæti verið möguleiki og ég er viss um að hann sé með nóg af möguleikum."
Athugasemdir
banner
banner