Fotbolti.net
31.07.26 - 21:54
Ívan Guðjón Baldursson

Forest vann og tapaði - Palace endar í fimmta sæti

Forest vann og tapaði - Palace endar í fimmta sæti
Canon

Mynd: EPA

Síðustu æfingaleikjum kvöldsins er lokið í Evrópu og komu tvö ensk úrvalsdeildarfélög við sögu í leikjum dagsins.
Nottingham Forest byrjaði daginn á sigri gegn portúgalska félaginu Portimonense þar sem Taiwo Awoniyi og nýi maðurinn Xaver Schlager skoruðu mörkin, lokatölur 1-2. Forest steinlá svo gegn stórveldinu Sporting CP seinna um daginn.

Igor Jesus kom Forest yfir snemma leiks gegn Sporting en portúgalski landsliðsmaðurinn Goncalo Inacio jafnaði skömmu síðar svo staðan var 1-1 í leikhlé.

Sporting gerði mikið af skiptingum í seinni hálfleik og gekk frá viðureigninni þar. Issa Doumbia kom Portúgölunum yfir á 61. mínútu áður en Rafael Nel kom inn af bekknum og innsiglaði sigurinn með tvennu. Lokatölur urðu því 4-1 fyrir Sporting.

Crystal Palace hafði þá betur gegn Al-Ula í úrslitaleik um 5. sætið í Como Cup á Ítalíu.

Justin Devenny og Eddie Nketiah skoruðu snemma leiks áður en Abdulmajeed Al Sulaiheem minnkaði muninn, svo staðan var 2-1 í leikhlé.

Miðvörðurinn efnilegi Jaydee Canvot innsiglaði sigur Palace á 57. mínútu svo lokatölur urðu 3-1.

Portimonense 1 - 2 Nottingham Forest
0-1 Taiwo Awoniyi
1-1 Joao Reis
1-2 Xaver Schlager

Sporting 4 - 1 Nottingham Forest
0-1 Igor Jesus ('2)
1-1 Goncalo Inacio ('11)
2-1 Issa Doumbia ('61)
3-1 Rafael Nel ('65)
4-1 Rafael Nel ('84)

Crystal Palace 3 - 1 Al-Ula
1-0 Justin Devenny ('1)
2-0 Eddie Nketiah ('9)
2-1 Abdulmajeed Al Sulaiheem ('16)
3-1 Jaydee Canvot ('57)
Forest vann og tapaði - Palace endar í fimmta sæti
Canon

Mynd: Crystal Palace

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.