31.07.26 - 19:59
Ívan Guðjón Baldursson
Frá ÍBV til Noregs (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Pólski markvörðurinn Marcel Zapytowski hefur yfirgefið ÍBV til að skipta yfir í norska boltann.
Marcel er búinn að skipta yfir til Egersund og fer þangað á frjálsri sölu eftir eitt og hálft ár í Vestmannaeyjum.
Hann varði mark ÍBV í Bestu deildinni í fyrra og hjálpaði liðinu að forðast fall en missti byrjunarliðssætið í sumar. Hann var aðeins búinn að spila 7 leiki í sumar fyrir félagaskiptin til Egersund.
Þar mun Marcel starfa ásamt Haraldi Árna Hróðmarssyni sem er aðstoðarþjálfari.
Egersund er með 20 stig eftir 15 umferðir í næstefstu deild í Noregi, í harðri baráttu um umspilssæti fyrir sæti í efstu deild.