Liverpool skoðar Davies - City fer á markaðinn - Man Utd vill Gutierrez - Bruno og Garnacho ekki öruggir - Fleiri orðaðir frá United
   fim 31. október 2024 11:24
Elvar Geir Magnússon
Haraldur hættir hjá Víkingi eftir mikla sigurgöngu
Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings.
Haraldur Haraldsson, framkvæmdastjóri Víkings.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Björn Einarsson og Haraldur Haraldsson.
Björn Einarsson og Haraldur Haraldsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haraldur Haraldsson hefur óskað eftir því að láta af störfum sem framkvæmdastjóri Víkings. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins.

Haraldur tók við starfinu árið 2010 og á þessum tíma hefur félagið stækkað og eflt umsvif sín til mikilla muna. Haraldur á gríðarlega mikinn þátt í þessum mikla vexti félagsins.

Haraldur hefur verið áberandi í kringum íslenskan fótbolta og var formaður ÍTF.

Ómetanlegt framlag
„Í gegnum stjórnartíð Haraldar hefur félagið gengið í gegnum krefjandi uppbyggingartímabil en jafnframt tímabil mikillar velgengni," segir á Björn Einarsson formaður Víkings á heimasíðu félagsins.

„Í öllum aðstæðum og verkefnum hefur Haraldur sýnt mikinn stöðugleika og festu í stýringu sinni og um leið væntumþykju gagnvart félaginu á öllum sviðum. Í gegnum árin hefur Haraldur ávallt verið í afar góðu sambandi við félagsmenn okkar af öllum kynslóðum – átt sterk tengsl við mikilvæga grasrót félagsins."

„Haraldur skilur við félagið í miklum blóma og styrk – það sem Víkingur er hvort tveggja í senn eitt sigursælasta og öflugasta félag landsins og um leið með mikinn styrk bæði rekstrarlega og fjárhagslega."

„Knattspyrnufélagið Víkingur þakkar Haraldi fyrir frábært, óeigingjarnt og ómetanlegt framlag hans til félagsins.
Haraldur hefur djúpar rætur við félagið og ljóst að það verður mikill söknuður af honum af þessum vettvangi. Félagið óskar honum um leið alls hins besta í öllu því sem hann tekur sér fyrir hendur."


Víkingur hefur þegar hafið formlegt og faglegt ráðningarferli á nýjum framkvæmdarstjóra samkvæmt heimasíðu Víkings. Haraldur mun halda áfram þar til nýr framkvæmdarstjóri hefur verið ráðinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner