Gunnar Heiðar ósáttur út í dómgæsluna: Að hann fái rautt, ég næ því ekki enn þá
„Þetta eru tvö góð lið að mætast og allt það, en mér fannst við vera betri í þessum leik,“ sagði Gunnar Heiðar Þorvaldsson, þjálfari HK, eftir 2–2 leik gegn Fylki á útivelli.HK þurfti að vinna leikinn eftir 2–3 tap í fyrri leiknum og er því úr leik í umspilinu eftir samanlagt 4–5 tap gegn Fylki.