13.09.26 - 19:28
Andri Stefánsson
Davíð Smári: Ég er ógeðslega stoltur af þessu liði
Auglýsing

Davíð Smári, þjálfari Njarðvíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Smári, þjálfari Njarðvíkur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur tók á móti Njarðvík í seinni leik liðanna í umspilinu. Þróttur sigraði 2-1 og þeir fara í úrslitaleikinn á Laugardalsvelli. Fótbolti.net ræddi við Davíð Smára, þjálfara Njarðvíkur, eftir leik.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 1 Njarðvík
Hvernig gerirðu upp þennan leik?
„Þetta voru bara tvö topplið í hörkuleik. Tvö jöfn og sterk lið og mjög jafnt einvígi. Litlu atriðin féllu með þeim en ekki með okkur. Ég vil samt óska Þrótturum til hamingju með að vera komnir í næsta leik. Ég er bara svekktur.“
Felix var ekki með í dag. Hvers vegna?
„Hann meiddist í síðasta leik. Við höfum lent í gríðarlegum áföllum í sumar og að missa Felix er auðvitað stórt högg. Ég er samt ekki að nota það sem afsökun. Ég er ótrúlega stoltur af liðinu og mér fannst það sýna fram á síðustu mínútu að það hafði trú á verkefninu.“
Hafðirðu trú á því að þið mynduð ná að jafna?
„Já. Hefðum við skorað annað markið þá held ég að það hefði komið ákveðið stress í Þrótt. Við sóttum vel í seinni hálfleiknum en náðum ekki að klína inn öðru marki. Það er svekkjandi.“
Hvernig meturðu tímabilið í heild?
„Ég held að það sé ekki mikill munur á Njarðvíkurliðinu og bestu liðunum. Okkur vantar meiri grimmd inni í teignum og að nýta færin betur, því við erum gríðarlega vel spilandi lið.
Þetta er mitt fyrsta tímabil með Njarðvík og við erum að reyna að setja okkar fingraför á liðið. Mér fannst sérstaklega sjást í seinni hálfleiknum í dag að við erum á réttri leið. Ég er bara ógeðslega stoltur af þessu liði.“
Viðtalið er talsvert lengra en þetta og Davíð Smári ræddi meðal annars um slæm meiðsli fyrirliðans og leikmenn Njarðvíkur. Hægt er að sjá viðtalið í heild sinni efst í fréttinni.