Fotbolti.net
14.09.26 - 00:21
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson

Fékk rautt spjald gegn HK: Fyrra gula var frekar heimskulegt

Auglýsing
Fékk rautt spjald gegn HK: Fyrra gula var frekar heimskulegt
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Mér líður helvíti vel en þetta var svekkjandi í lokin, þarf víst að sitja upp í stúkunni" sagði Aron Snær Guðbjörnsson, leikmaður Fylkis eftir að Fylkir komst í úrslit Lengjudeildarumspilsins.

Lestu um leikinn: Fylkir 2 - 2 HK

Hvað gerðist þegar þú fékkst rautt spjald?

„Ég er að hlaupa til baka og fæ hann á blindu hliðina og hleyp hann niður, skiljanlega rautt."

„Fyrra gula var frekar heimskulegt, hann er að drulla yfir Gumma sem liggur niðri á jörðinni ég ætla eitthvern veginn að bakka hann upp, en já bara heimskulegt."

Hvernig var frammistaðan?

„Það er bullandi barátta og við vinnum þetta á viljanum."

„Þeir eru með sterkt lið og eru sterkir í loftinu. Við einhvern veginn slökum samt aldrei á og höldum alltaf áfram."

„HK er með drullu gott lið, líkamlega sterkir, bara hrós til þeirra."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.