13.09.26 - 19:50
Andri Stefánsson
„Við höfum tekið eitt skref en markmiðið er ekki komið enn“.
Auglýsing

Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þróttur tók á móti Njarðvík í seinni leik liðanna í umspilinu í dag. Leikar enduðu með 2-1 sigri Þróttar og þeir eru komnir í úrslitaleikinn á Laugardalsvelli. Fótbolti.net ræddi við Sigurvin Ólafsson, þjálfara Þróttar, eftir leik.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 2 - 1 Njarðvík
2-1 sigur í dag. Hvernig gerirðu upp leikinn?
„Ég er gríðarlega ánægður og stoltur af strákunum að ná þessum úrslitum og komast í úrslitaleikinn. Planið var að reyna að vinna leikinn, en um leið þurftum við að vera skynsamir og passa upp á forystuna. Þetta var svolítill línudans en mér fannst okkur takast það nokkuð vel.“
Úrslitaleikur fram undan. Hvernig hljómar það?
„Það hljómar mjög vel. Við höfum séð þetta fyrir okkur í margar vikur og nú er þetta orðið raunverulegt.“
Þórhallur var virkilega góður í markinu í dag. Það hlýtur að vera gott að hafa svona markmann.
„Já, við erum með stórkostlegan markmann. Þórhallur var frábær í dag, eins og varnarlínan öll. Andstæðingurinn fékk ekki mörg opin færi og það segir mikið um varnarvinnuna, bæði hjá miðjumönnum og varnarmönnum.“
Góð helgi fyrir Þrótt?
„Já, þetta er mjög góð helgi fyrir Þrótt. Stelpurnar geta fagnað því þær eru búnar að klára sitt, en við erum ekki búnir að klára okkar. Við höfum tekið eitt skref en markmiðið er ekki komið enn.“
Viðtalið í heild sinni má sjá efst í fréttinni