Heimir: Við getum ekki látið lið koma og ýta okkur úr okkar leik


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Bara vel" sagði Heimir Guðjónsson, þjálfari Fylkis, eftir 2-2 jafntefli gegn HK á heimavelli. Fylkir vann einvígið 5-4 eftir að hafa unnið fyrri leikinn 2-3.
„Förum í leikinn þá var fyrri hálfleikur fínn af okkar hálfu, við vorum með gott control á þessu. Að mínu mati komumst við sanngjarnt yfir. Seinni hálfleikurinn var ekki góður, það voru nokkar ástæður fyrir því. Þeir komu bara miklu grimmari í seinni hálfleikinn og þeir drápu okkur í seinni boltanum."
HK skoraði tvö mörk úr föstum leikatriðum.
„Við töldum að við vorum búnir að fara vel yfir þau á milli leikja. Þróttararnir eru sterkir í föstum leikatriðum, við þurfum að eyða svolítinn tíma í föstum leikatriðum í vikunni."
Hvað gerðist í seinni hálfleik, voru þið litlir í ykkur?
„Við erum alls ekki litlir í okkur, við erum Fylkir, við erum alltaf stórir. Svona kannski taugarnar aðeins of mikið þandar og vantaði svona smá ró á boltanum."
Fullt af gulum spjöldum og þrjú rauð spjöld, hvað gerðist?
„Þetta var alvöru bardagi að spila við HK sem eru drullu erfitt að spila við. Þegar við spiluðum við þá hérna í Árbænum þá bullyuðu þeir okkur út úr leiknum. Það er það sem ég er búinn að eyða mestum tíma í að tala um fyrir þetta einvígi að við getum ekki látið lið koma og ýta okkur úr okkar leik."
Aron Snær Guðbjörnsson fékk rautt og spilar ekki í úrslitaleiknum gegn Þrótti.
„Aron hefur staðið sig vel eftir að hann kom inn í vörnina. Öflugur strákur en við erum búnir að lenda í ýmsum skakkaföllum í sumar og fundið lausnir."
