18.09.26 - 22:13
Sölvi Haraldsson
„Spurning hvort Bjarni Jóh hafi smíðað hana fyrir tveimur árum“
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
„Þetta var erfitt. Við gerðum þetta vel í dag fannst mér. Það var helvíti vel gert hjá Frosta í 2-1 markinu að koma okkur yfir, maður var vel stressaður ég viðurkenni það, þangað til Viðar skoraði í lokin. Heilt yfir mjög sáttur bara.“ sagði Aron Fannar Birgisson, fyrirliði Selfossliðsins, eftir 3-1 sigur í úrslitaleik Gatorade bikarsins á Laugardalsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Selfoss 3 - 1 Haukar
„Ég vill bara meina að fyrsta korterið hafi verið skrekkur í okkur. Eftir að við jöfnum fannst mér vera jafnræði með liðunum, ég fann það í hálfleik og inn í seinni hálfleikinn. Svona á þetta að vera samt, mjög skemmtilegt. “
Annað sinn sem Selfoss tekur þátt í þessari keppni og annað sinn sem þeir vinna hana, hver er uppskriftin að þessu?
„Spurning hvort Bjarni Jóh hafi smíðað hana fyrir tveimur árum. Ég veit það ekki, þetta er virkilega skemmtileg keppni. Núna er stefnan sett ofar og byggja ofan á liðið sem við erum með núna. Vonandi halda okkur uppi í Lengjudeildinni og byggja ofan á það.“
Hvað þarf Selfoss að gera til að halda sæti sínu í Lengjudeildinni að ári?
„Við erum að fara í mikla vinnu núna að byggja grunninn, Óli er með miklar taktískar pælingar sem hann er að koma með inn í okkar leik og okkur finnst það vera að koma. Við ætlum bara að byggja ofan á það, æfa mikið í vetur og vera sterkari á næsta ári en í fyrra.“ sagði Aron Fannar en viðtalið við fyrirliðann má finna í heild sinni í spilaranum hér að ofan.