Fotbolti.net
18.09.26 - 21:56
Sölvi Haraldsson
Gatorade bikar Fótbolti.net

Óli Stefán: Fer mér betur að eyða orkunni í eitthvað annað

Auglýsing
Óli Stefán: Fer mér betur að eyða orkunni í eitthvað annað
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Við vorum að spila við mjög gott lið og þeir voru flottir Haukarnir. Við þurftum á okkar góða skipulagi að halda, við erum ágætir þegar við liggjum niðri svo mér leið þokkalega. Ótrúlega gaman að sjá strákana klára þetta enda fannst mér þeir verðskulda það mikið eftir mikla og góða vinnu.“ sagði Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Selfoss, eftir 3-1 sigur á Haukum í úrslitaleik Gatorade bikarsins á Laugardalsvelli í kvöld.
Lestu um leikinn: Selfoss 3 - 1 Haukar
Hversu sætt var að sjá Viðar Örn klára leikinn með markinu sínu hérna í lokin?

„Ótrúlega táknrænt að hann klári þetta, hann er búinn að vera svo góður fyrir okkur. Það sem hann leggur inn í þennan leik í dag, þetta er ekki bara markið, hann er ótrúlega mikilvægur fyrir okkur og þessa ungu stráka.“

Óli vill meina að eftir jöfnunarmarkið hafi Selfossliðið þorað meira að ógna.

„Við fórum að þora að halda boltanum betur og finna taktin og þetta flæði eftir jöfnunarmarkið, mér fannst það ótrúlega gaman þegar við fundum taktinn. Haukarnir voru góðir og tóku aðeins yfir í seinni hálfleik en mér fannst við vera í fullkominni stjórn án bolta í varnarskipulagi.“

Hvernig fannst Óla dómgæslan vera í kvöld?

„Mér fannst þetta bara vera vel dæmdur leikur. Menn geta auðvitað kallað eitthvað hér og þar en heilt yfir fannst mér þetta vera ótrúlega vel dæmdur leikur. Ég hef lært það í sumar að eyða orkunni í eitthvað annað en svona fer mér allaveganna betur.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.