Anton gagnrýninn á sjálfan sig: Ég bakkaði aðeins of mikið


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Hefði verið flottara með þrjú stig" sagði Anton Ingi Rúnarsson, þjálfari Fram, eftir 2–2 jafntefli á heimavelli gegn Víkingum í neðri hluta Bestu deildarinnar.
„Úr því sem komið var, þá tek ég stiginu fagnandi."
Átti Fram skilið eitt stig?
„Nei, mér fannst við ekki vera spila eins og við höfum verið að spila síðustu leiki. En virkilega gott að ná stiginu og að koma til baka."
„Það er okkar element í þessu að við virðumst ekki geta verið yfir og við þurfum alltaf að fá mark á okkur til þess að við förum og keyrum upp og ýtum upp tempóinu. Það gerðist þarna í lokin og við komum til baka."
„Það er að hafa komið til baka og ekki misst Víkingana í stigi fyrir ofan okkur, það heldur þeim fyrir neðan okkur."
Anton gerði eina breytingu í hálfleik, sem hann sér eftir.
„Ég geri mistök þarna að breyta þessu í hálfleiknum og ég tek það á mig."
„Ég fór kannski í það að verja forystuna mikið, í rauninni já. Fjölga inn á miðsvæðinu og fækka í sóknarleiknum og það kostar það að við fáum á okkur mark."
„Við hefðum átt að keyra á þetta og ganga frá leiknum, við erum eitt núll yfir og þær þurfa að sækja sigur. Ég bakkaði aðeins of mikið."
Það munar aðeins tveimur eða þremur stigum á milli liðanna í neðri hlutanum.
„Í rauninni að missa ekki liðin sem við erum að spila við upp fyrir okkur, það skiptir gífurlega miklu máli. En þetta stig í dag hjálpar okkur og svo verða úrslitin á morgun að ráða því hver verður með okkur ekki í fallsvæðinu."
