14.11.26 - 00:26
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá PlovdivOrri ekki í keppni við Andra: Óumflýjanlegt að við bætum báðir metið
Auglýsing

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

'Nei, það var svo sem ákvörðun sem ég og Davíð Snorri tókum - í bili'

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

„Sáttur með leikinn, fagmannlega gert á móti frekar slöku liði Búlgara. Ég held að þeir viti það alveg leikmennirnir að eru betri en það sem þeir sýndu í dag. Við gerðum okkar vel og það er mikilvægast þannig að ég er bara ánægður með liðið," sagði landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson við Fótbolta.net eftir öruggan sigur á Búlgaríu í Þjóðadeildinni í kvöld.
Orri fiskaði vítaspyrnuna fyrir fyrsta mark Íslands og skoraði svo sjálfur annað markið áður en hann fór af velli í hálfleik.

Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 5 Ísland
Kom þér á óvart hversu slakir Búlgararnir voru?
„Ég bjóst við meira frá þeim, bjóst við meiri anda og erfiðari byrjun. En mér fannst við líka bara byrja þetta af góðum krafti, vorum að ýta aðeins á þá og sækja. Síðan hjálpaði þetta bara að ná þessu marki inn snemma."
Segðu mér aðeins frá þessu víti. Var þetta víti?
„Ég var alveg að fiska það og mér fannst hann bara klaufi að fara í mig. Þetta var auðvitað soft en ef þú ferð í hælinn á mér þá fer ég niður og bara víti. Við erum með með VAR-ið sem að hjálpar okkur í þessu stöðu og ég nýt mér það til fulls"
Andri Lucas steig á punktinn og skoraði úr vítaspyrnunni. Svekktur að vera ekki lengur á vítunum?
„Nei, það var svo sem ákvörðun sem ég og Davíð Snorri (aðstoðarlandsliðsþjálfari) tókum - í bili," sagði Orri og hló. „Ég ætla að æfa þetta aðeins áður en ég stíg aftur á punktinn."
Taktu mig aðeins í gegnum þetta mark sem þú skorar og þessa sendingu frá Hödda?
„Já, bara geðveik sending, gott mark yfir allt. Ég vissi svo sem úr fyrri leiknum að þeir væru frekar hægir þannig að bara einhvern veginn náði að nýta mér það og síðan auðvitað er bara sjálfstraust fyrir framan markið, sjálfstraust og allt sem því fylgir því. Ég efaðist ekki í sekúndu fyrir framan markið."
Arnar talaði um að þú værir svolítið stífur aftan í læri. Hvernig er skrokkurinn?
„Hann er bara fínn. Það er búið að vera mikið leikjaálag á mér og erfiðir leikir. Mikið af hlaupum og ég fann fyrir þessu aðeins í vikunni, en var góður í dag samt. Það var engin ástæða til að fara út af en maður vill bara ekki taka neina sénsa, sérstaklega þegar við erum í góðri stöðu og mikilvægur leikur á mánudaginn. Ég held að við tókum rétta ákvörðun, svona fullorðinsákvörðun hjá mér. Auðvitað vill maður ekkert fara út af, ég held að allir viti það að ég elska að vera inn á og erfitt að horfa á frá hliðarlínu, en strákarnir gerðu vel og kláruðu þetta vel."
Leikur sem þarf að vinnast á á mánudaginn ef við ætlum að tryggja toppsætið. Hvernig leggst það í þig?
„Það hefði svo sem ekki breytt miklu (ef það hefði ekki verið þannig, við ætluðum hvort eð er að fara í leikinn til að vinna hann. Auðvitað hefði verið fínt að geta klárað þetta (í kvöld) en hugsunin væri allt sú sama, við erum að fara til að vinna þennan leik og sýna okkur frammistöðu til að byggja ofan á það sem við erum að gera."
Mæta með aukaúlpu og teppi
Er eitthvað vesen að fara frá Spáni svo hingað og svo í frostið á Íslandi?
„Nei, nei, það er nú ekkert mál. Við erum veraldarvanir drengir, langt síðan kannski ég hef spilað í svona köldu veðri. Ég hef aldrei spilað á Íslandi í nóvember þannig að það verður skemmtilegt, smá krefjandi aðstæður. En við erum allir Íslendingar og elskum að koma heim og sjá fólkið á vellinum, hvet auðvitað alla til að koma, þurfum á stuðningnum að halda. Ég veit að það verður kalt en takið bara aukaúlpu og teppi."
Munu báðir bæta markametið
Andri kominn upp fyrir þig á markaskoraralistanum. Eruð þið í keppni innbyrðis?
„Ekki beint sko, auðvitað bara jákvæða keppni, jákvæð samkeppni svona að mestu leyti. Við erum auðvitað ekki í stöðuglega, spilum saman og spilum vel saman. En ef Andri skorar fyrir landsliðið og það gagnast landsliðinu þá er ég mjög glaður. Ég er ekki í neinni keppni við hann. Ég held það sé óumflýjanlegt að við bætum báðir metið á einhverju tímapunkti en það er bara fyrir framtíðina að segja. Við erum bara að njóta þess að spila saman núna og fókusinn er aðallega að ná sem bestum úrslitum fyrir Ísland," sagði fyrirliðinn að lokum.