14.11.26 - 08:15
Elvar Geir Magnússon
Logi: Mér finnst liðið vera að þroskast
Auglýsing

Mynd: KSÍ

Mynd: KSÍ

Bakvörðurinn Logi Tómasson átti góðan leik fyrir íslenska landsliðið sem vann 5-0 útisigur á Búlgaríu í gær.
Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 5 Ísland
Þetta var faglegur sigur. Það var bara eitt markmið; að vinna leikinn og 5-0 er helvíti gott. Þetta var þroskuð frammistaða og skref í rétt átt," sagði Logi eftir leikinn.
„Það var þægilegt að skora snemma í leiknum, þetta var aldrei í hættu. Við sögðum í hálfleik að einu færin sem þeir gætu mögulega fengið var ef við myndum sálfir gefa þeim eitthvað blóð á tennurnar. Mér finnst liðið vera að þroskast, það er sterkt."
Liðið flýgur heim til Íslands í dag en á mánudag klukkan 17 verður leikið gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli. Þar geta strákarnir okkar innsiglað sigur í riðlinum.