Fotbolti.net
12.11.26 - 16:50
Magnús Atlason

Daníel Tristan um vítið: Rennur af skónum

Auglýsing
Daníel Tristan Guðjohnsen

Daníel Tristan Guðjohnsen

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland og Grikkland gerðu 1-1 jafntefli á Pepsi-vellinum í Laugardal í dag í umspili fyrir EM. Daníel Tristan Guðjohnsen kom í viðtal hjá Fótbolta.net eftir leik.
Lestu um leikinn: Ísland U21 1 - 1 Grikkland U21
"Ég er soldið svekktur. Við erum klárlega betra liðið í dag og aðstæðurnar ekki alveg þær bestar. En við sýnum að við viljum spila fótbolta og við náum því oft."

Daníel geigaði á vítaspyrnu í seinni hálfleik. "Geturðu leitt mig í gegnum það."

"Ég ætlaði að chippa en boltinn rennur aðeins af skónum mínum og ég náði ekki alvöru touch-i á hann þannig að, mis-hit."

"Hvernig sérðu seinni leikinn fyrir þér?"

"Við höfum fulla trú og eins og við erum búnir að vera að tala um í klefanum, við erum miklu betra lið. Maður sá það alveg fótboltalega séð, við erum bara miklu betri og við erum bara stórir og við förum inn í næsta leik með kassann úti.

Sjáðu viðtalið efst í fréttinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.