Fotbolti.net
14.11.26 - 00:42
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
- Skrifar frá Plovdiv

Höddi: Menn eru eitthvað klikkaðir ef þeir halda þetta sé hreinsun

Vissi ekki að hann væri á hættusvæði

Auglýsing
Höddi: Menn eru eitthvað klikkaðir ef þeir halda þetta sé hreinsun
Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
„Góður leikur, gott að geta skorað fimm mörk og klárað þetta vel. En svona svekkelsi að ég vissi ekki að ég var á gulu spjaldi þannig að ég ákvað að stoppa sókn og gera það vel, en síðan fattaði ég að það voru að þá komin tvö gul sem kemur mér í þetta bann. Það kemur bara maður í manns stað og við erum þéttir þannig að svona er þetta. En góður leikur þrátt fyrir það," segir Hörður Björgvin Magnússon við Fótbolta.net eftir öruggan sigur Íslands á Búlgaríu í Þjóðadeildinni.

Eins og Hörður segir fékk hann gult spjald í leiknum og verður því í leikbanni gegn Lúxemborg á mánudaginn.
Sjáðu Orra bæta við öðru marki eftir frábæra sendingu Harðar
TENGT EFNI

Sjáðu Orra bæta við öðru marki eftir frábæra sendingu Harðar

Lestu um leikinn: Búlgaría 0 - 5 Ísland
Þannig að þú hefðir ekki brotið svona ef þú hefðir vitað af stöðunni?

Nei. Ég. því miður, átti að vita betur. En svona er þetta, ég braut fagmannlega til að stoppa sókn en því miður þá endaði þetta svona og ég vissi ekki af því."

Það voru einhverjar efasemdaraddir um þessa stoðsendingu hjá þér að þetta væri mögulega hreinsun .

„Menn eru eitthvað klikkaðir ef þeir halda þetta sé hreinsun. Hákon var þetta hreinsun eða?" spurði Höddi markvörðinn Hákon Rafn.

„Nei," svaraði markvörðurinn sem stóð við hlið hans. „Við erum búnir að tala um þetta lengi."

Höddi segir að hann hafi verið búinn að æfa þessa sendingu.

„Nei, þetta var aldrei hreinsun. Ég sá Orra einan og ég vissi að hann var snöggur þannig að ég gat alltaf sent langan bolta á hann."

Komu Búlgararnir þér á óvart?

„Þeir eru góðir. Þetta er hávaxið lið og geta spilað góða bolta. En maður vissi að ef maður myndi ná einu, tvö mörkum á þá myndi allt hrynja hjá þeim. Þeir eru ekkert í besta forminu núna en þetta er þétt lið og erfitt að brjóta niður. En þegar við náum að brjóta þá, þá er þetta létt."

Hvað tekur við hjá þér, bara Grikkland á morgun?

„Nei, ég fékk leyfi að fara með heim og ætla að æfa með liðinu, halda áfram að styðja við bakið á strákunum og kveðja skipparann almennilega," sagði Höddi og á þá við Aron Einar Gunnarsson sem er á leið í sinn síðasta landsleik.

Hörður kom óvænt inn á snemma leiks vegna meiðsla Stefáns Teits. Er erfitt að koma inn á svona snemma leiks?

„Ég náttúrulega hitaði ekki neitt upp, var bara kallaður strax og setti á mig legghlífar."

„.Jú, þetta er náttúrulega erfitt að koma inn sem varnarmaður í svona leik. Þú náttúrulega þarft að fá rytmann og ná að hita upp og allt þetta. En maður þarf bara að vera snöggur í gang og passa sig á fyrstu mínútum að maður slíti ekki neitt. Maður er kominn á aldur, yfir þrítugt, þannig maður þarf að passa sig,"
sagði Höddi að lokum.
Höddi: Menn eru eitthvað klikkaðir ef þeir halda þetta sé hreinsun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lagði upp mark Orra Steins.

Lagði upp mark Orra Steins.

Canon

Mynd: KSÍ

Höddi: Menn eru eitthvað klikkaðir ef þeir halda þetta sé hreinsun
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.