Staðan í viðureign Wales og Belgíu er orðin 2-1, Wales í vil.
Radja Nainggolan kom Belgíu yfir á 13. mínútu en 18 mínútum síðar jafnaði Ashley Williams, fyrirliði Wales, með skalla.
Það var síðan á 57. mínútu sem Hal Robson Kanu kom Wales yfir með góðu marki eftir laglegan snúning en markið kom gegn gangi leiksins.
Markið má sjá hér að neðan.
Robson-Kanu kemur #WAL yfir gegn #BEL eftir ótrúlegan snúning inni í teig! 2-1 #EMÍsland https://t.co/NwybV3UkOq
— Síminn (@siminn) July 1, 2016
Hér má sjá mark Belga.
Hér má sjá fyrra mark Wales.
Athugasemdir