Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   sun 17. desember 2017 16:07
Ívan Guðjón Baldursson
England: Lukaku skoraði aftur í ósannfærandi sigri
Mynd: Getty Images
West Brom 1 - 2 Manchester United
0-1 Romelu Lukaku ('27)
0-2 Jesse Lingard ('35)
1-2 Gareth Barry ('77)

Manchester United hafði betur gegn West Bromwich Albion í fyrsta leik dagsins í enska boltanum.

Romelu Lukaku og Jesse Lingard gerðu mörk Rauðu djöflanna í afar tíðindalitlum fyrri hálfleik.

Mörk gestanna komu bæði uppúr þurru en heimamenn voru betri í síðari hálfleik og minnkaði Gareth Barry muninn þegar stundarfjórðungur var eftir.

Heimamenn komust nálægt því að jafna en sigur Man Utd staðreynd og eru lærisveinar Jose Mourinho ellefu stigum eftir nágrönnum sínum í toppbaráttunni.

Man Utd heimsækir Leicester næstu helgi á meðan West Brom, sem er í fallsæti, fer til Stoke.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner