Savinho færist nær Spurs - Inacio á lista Liverpool - Man Utd heldur í vonina um Anderson
Albert: Þetta var ekki auðvelt
Jón Dagur: Alvaran hefst í haust
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
Fyrsta landsliðsmarkið komið: „Það var bara ekkert annað hægt en að slútta þessu“
Glódís hreinskilin: Veit ekki hvernig þetta umspil virkar
Diljá Ýr: Ennþá með sama markmið
HM Álitið: Hvaða leikmaður springur út?
HM Álitið: Hverjir verða spútnik liðið?
„Kom mér lítið á óvart að hafa fengið þetta tækifæri“
HM Álitið: Hvaða lið vinnur mótið?
Munur á Spáni og Íslandi - „Gylfi Sig á miðjunni og einhver rafvirki í vinstri bakverði“
Tómas Bent fer yfir tímabilið í Skotlandi - „Ákveðin pyntingaraðferð“
HM Álitið: Hver verður efnilegastur?
Þekkir að spila yfir sumarið í Bandaríkjunum - „Held það sé enginn líkami sem geti vanist því"
„Ekki jafn frjálst og á Íslandi, sérstaklega ef maður var í KR“
HM Álitið: Hver verður bestur?
Kennie bestur í maí - „Lengsta frí sem Rúnar hefur gefið mér“
Hákon Arnar: Vona að Messi spili
Gylfi um skilaréttsmálið: Meira en ánægður að hafa skipt
Aron Einar: Get staðfest að ég verð ekki áfram í Al-Gharafa
   fös 17. maí 2019 22:03
Orri Rafn Sigurðarson
Þórhallur: Hugarfar sem maður vill að liðið sitt endurspegli
Þórhallur á hliðarlínunni í leik hjá Þrótti.
Þórhallur á hliðarlínunni í leik hjá Þrótti.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þróttur og Víkingur Ó. Áttust við á Eimskipsvellinum í Laugardalnum í kvöld þar sem Ólsarar fóru með 2-1 sigur af hólmi. Heimamenn voru mun sterkari í síðari hálfleik og ættu að vera hundsvekktir með að hafa ekki fengið neitt úr þessum leik.

„Þetta er gríðarlegt svekkelsi fyrst eftir leik. Tilfinning mín var að við værum að fara sækja hérna sigur og hugarfar leikmanna var þannig." Sagði Þórhallur þjálfari Þróttar eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 -  2 Víkingur Ó.

Ólsarar skora eftir 3 mínútur eftir varnarmistök. Eru svo mun betri í síðari hálfleik þar sem gestirnir sköpuðu lítið sem ekkert en Þróttur fær samt á sig mark. Er varnarleikurinn áhyggjuefni ?

„Það breytist ekkert sérstaklega mikið en þetta er annar leikurinn í röð sem við lendum undir eftir 5 mínútur á heimavelli og það er eitthvað sem við þurfum að laga."

„Það eru hlutir sem við þurfum að vinna í en ég er ánægður með hugarfarið í liðinu því það er það sem maður vill að liðið sitt endurspegli hérna í seinni hálfleii. Því það vorum við sem vorum að berja á þeim."Sagði Þórhallur að lokum.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan
Slapp
banner
banner