Real undirbýr 220 milljóna evra tilboð í Olise - Arsenal og Liverpool með augastað á Barcola - Man Utd vill landsliðsmarkvörð Paragvæ
Besta Álitið: Hver kemur heim í glugganum?
Lárus Orri: Var geldur á miðjunni
Óskar Borgþórs: Draumadrátturinn minn
Venni: Frábært að geta sett hann inn á
Besta Álitið: Hvaða lið á eftir að snúa genginu við?
Besta Álitið: Hvaða lið getur veitt Víkingum keppni?
Besta Álitið: Hvaða leikmaður fer út í glugganum?
Rokkar um stöður í Noregi - „Alltaf stemning frammi“
HM Álitið: Hvaða lið dettur óvænt út í riðlinum?
Gummi Kri: Skil að þeir séu svekktir
Gaui Lýðs: Einn leikur á þeirri vegferð sem við erum á
Maggi: Geggjað að það sé Megavika núna
Gabríel Aron: Smá skref niður til þess að taka tvö upp
Megaviku Birkir þakklátur: Örugglega svona tuttugu ár síðan
Jökull: Algjörlega galið að eiga þá umræðu hér
HM Álitið: Hvað kemur mest á óvart?
HM Álitið: Hvaða frægi verður mest áberandi í stúkunni?
Albert: Þetta er auðvitað geitin í leiknum
Jón Dagur: Hann braut okkur alveg með fyrstu sendingunni
Orri: Hann byrjaði að skapa mikinn usla á milli línanna
   sun 15. september 2019 22:42
Baldvin Már Borgarsson
Hildur Antons: Hef fulla trú á því að við eigum séns
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hildur Antonsdóttir var frekar fúl að leik loknum gegn Val í Pepsi Max deildinni fyrr í kvöld þrátt fyrir jöfnunarmark í restina sem gefur Breiðablik veika von.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  1 Valur

Það hlýtur að vera hrikalega fúlt að vinna ekki leikinn miðað við hvernig hann spilaðist?

„Við erum þakklátar fyrir stigið og ánægðar með að þær fái ekki að fagna á okkar heimavelli en mér fannst við alltaf eiga að fá þrjú stig úr þessum leik.''

Þú færð gott færi, Alexandra fær gott færi og það er í raun aulalegt af ykkur að vera ekki komnar yfir í leiknum?

„Já algjörlega, ég hefði alltaf átt að klára þetta færi en það var smá stress í byrjun, svo fannst mér við eiga að fá víti í sókninni áður en þær skora þegar það er brotið á mér og það hefur mikið að segja um leikinn.''

Það þarf kraftaverk til að Valur verði ekki meistari, hefur þú trú á að það geti gerst?

„Ég hef fulla trú á því að við eigum séns, ef heimurinn er réttlátur finnst mér við eiga að vinna þetta miðað við hvernig leikurinn var í dag.''

Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan en þar ræður Hildur meðal annars betur um leikinn, hvað klikkaði, titilbaráttuna og trúnna á því að þær geti orðið meistarar.
Slapp
banner