SKÝRSLAN: Tvö rauð og Blikar komnir í 8 liða úrslit
Hvað réði úrslitum?
KR voru bara ótrúlega hægir og fyrirsjáanlegir í öllum sínum sóknaraðgerðum í leiknum, Blikar áttu þennan sigur skilið þótt leikurinn væri ekki mikið fyrir augað.
Bestu leikmenn
1. Oliver Sigurjónsson
Miðja Blika var yfir á öllum sviðum í dag, gef Oliver manni leiksins því hann skoraði og var mjög öflugur eins og hinir á miðju Breiðabliks.
2. Kolbeinn Þórðarson
Strákur sem er fæddur árið 2000 en spilaði eins og hann ætti 10 ár á bakinu sem miðjumaður í efstu deild. Gísli Eyjólfsson var einnig mjög öflugur en ég gef Oliver og Kolbeini þetta í dag.
Atvikið
Rauða spjald Arnórs. KR voru aldrei líklegir í þessum leik en Arnór eyðilagði það endanlega þegar hann ákvað að sparka Gísla niður á miðjum vellinum og fá sitt annað gula spjald. Eftir það voru Blikar bara líklegri til að bæta við.
Hvað þýða úrslitin?
KR eru dottnir út úr bikarnum meðan Blikar eru komnir í 8 liða úrslit og sitja á toppi Pepsí deildarinnar. Góðir dagar í Kópavoginum.
Vondur dagur
Arnór Sveinn Aðalsteinsson.
Það væri hægt að gefa mörgum í KR liðinu þennan titil en Arnór sýndi ótrúlega heimskulega hegðun með að láta reka sig útaf og drap leikinn endanlega fyrir KR, reynslumikill leikmaður sem á að vita betur.
Það væri hægt að gefa mörgum í KR liðinu þennan titil en Arnór sýndi ótrúlega heimskulega hegðun með að láta reka sig útaf og drap leikinn endanlega fyrir KR, reynslumikill leikmaður sem á að vita betur.
Dómarinn - 8
Ekkert hægt að setja út á frammistöðu Ívars í kvöld, dæmdi leikinn ágætlega og rauða spjaldið hárréttur dómur. Ég sá ekki seinna rauða en enginn sem var eitthvað að mótmæla því sem ég heyrði.



