Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Extra völlurinn
Fjölnir
Fjölnir
4 - 5
Þór
Þór
0 - 142' Ignacio Gil EchevarriaValmir Berisha 87'1 - 1Valmir Berisha (misnotað víti) 120'1 - 2120' Ármann Pétur Ævarsson (víti)120' Ignacio Gil Echevarria (misnotað víti)Þórir Guðjónsson (víti) 120'2 - 2Bergsveinn Ólafsson (víti) 120'3 - 23 - 3120' Óskar Elías Zoega Óskarsson (víti)120' Jónas Björgvin Sigurbergsson (misnotað víti)Guðmundur Karl Guðmundsson (víti) 120'4 - 3Hallvarður Óskar Sigurðarson (misnotað víti) 120'4 - 4120' Loftur Páll Eiríksson (víti)4 - 5120' Jakob Snær Árnason (víti)Igor Jugovic (misnotað víti) 120'
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Myndir: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir

SKÝRSLAN: Allt að gerast í Grafarvogi

Hvað réði úrslitum?

Leikskipulag og barátta Þórsara vann þennan leik, í fyrri hálfleik óðu Þórsarar í færum og voru í raun óheppnir að vera bara 1-0 yfir, þeir missa leikinn í framlengingu og vító þar sem Aron Birkir er hetjan!

Bestu leikmenn

1. Aron Birkir Stefánsson (Þór)

Aron var frábær í markinu, átti hörku vörslur í leiknum sjálfum, gerði vel í fyrirgjöfum og háum boltum og varði svo 3 vítaspyrnur.

2. Alvaro Montejo (Þór)

Geggjaður leikmaður sem gerði Fjölnismönnum oft erfitt fyrir, fékk helling af færum og oft eftir eitthvað rugl sem hann skapaði sjálfur með hraða og áræðni. Sóknarleikur Þórsara missti mikið þegar Alvaro fór útaf.

Atvikið

Fjölnismenn áttu að fá vítaspyrnu í seinni hálfleik, ef ekki tvær. En það var augljóst víti þegar Þórir var tekinn niður inn í teig snemma í seinni hálfleik, leikurinn hefði kannski breyst við að jafna fyrr.

Hvað þýða úrslitin?

Þór verður í hattinum þegar dregið verður í 8 - liða úrslit.

Vondur dagur

Þónokkrir Fjölnismenn koma til greina hér, ætla að stimpla þetta á Guðmund Karl Guðmundsson sem var ekki spes í dag, of margir tapaðir boltar hjá honum og oft að taka lélegar ákvarðanir.

Dómarinn - 5

Helgi vinur minn var fínn í dag þó hann hafi rænt Fjölnismenn víti eða tveimur í seinni hálfleik, það er dýrt en fyrir utan það var allt annað flott.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.