SKÝRSLAN: Baráttan allsráðandi í sigri Víkinga á Fram
Hvað réði úrslitum?
Framarar voru undir í baráttunni lengst af í leiknum og geta sjálfum sér um kennt. Víkingar mættu mun grimmari til leiks og voru Framliðinu fremri á öllum sviðum fótboltans. Þeir uppskáru fyrir það mark eftir snarpa sókn sem dugði til að vinna leikinn.
Bestu leikmenn
1. Vignir Snær Stefánsson
Var óþreytandi og vann allann þann tíma sem hann spilaði. Vann boltann og hóf sóknina sem Víkingar skoruðu úr og rak endahnútinn á hana sömuleiðis.
Fórnaði sér fyrir liðið á gulu spjaldi þegar hann stöðvaði snögga sókn Fram og uppskar seinna gula og rautt en sú áhætta borgaði sig í dag.
Fórnaði sér fyrir liðið á gulu spjaldi þegar hann stöðvaði snögga sókn Fram og uppskar seinna gula og rautt en sú áhætta borgaði sig í dag.
2. Emmanuel Eli Keke
Átti fínan leik á miðjunni. Braut niður margar sóknir Fram og skilaði boltanum vel frá sér stærstan hluta leiksins.
Atvikið
Mark eða ekki mark. Framarar töldu að þeir hefðu skorað jöfnunarmarkið í uppbótartíma og var undirritaður á sama máli við fyrstu sýn. Eftir að hafa séð umrætt atvik aftur er ég ekki svo viss en um það er mjög erfitt að dæma.
Hvað þýða úrslitin?
Í bikarkeppnum er það svo einfalt að sigurliðið heldur áfram en tapliðið fellur úr leik. Fram getur því sett alla orku sína í Inkasso deildina meðan Víkingar færast einu skrefi nær bikarnum sjálfum.
Vondur dagur
Helgi Guðjónsson átti afar dapran leik í liði Fram. Var alltaf skrefi á eftir og tapaði boltanum trekk í trekk og kom sér aldrei í takt við leikinn.
Dómarinn - 6
Egill var á köflum of bráður á flautunni og strax eftir leik var hann með töluvert lægri einkunn á blaði hjá mér. Eftir samtöl við fólk á vellinum og tækifæri til að sjá vissa hluta leiksins aftur hækkar hann talsvert. Rauða spjaldið á Guðmund sem ég taldi rangt við fyrstu sýn er rétt sem og seinna gula á vigni. Eina stóra ákvörðunin sem hann klikkar á er að hann átti líklega að reka Heiðar Geir út af í fyrri hálfleik fyrir tveggja fóta tæklingu.


