Fotbolti.net
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Grindavíkurvöllur
Grindavík
Grindavík
1 - 2
ÍA
ÍA
0 - 148' Steinar Þorsteinsson Aron Jóhannsson 79'1 - 11 - 288' Arnar Már Guðjónsson
Dómari: Einar Ingi Jóhannsson

SKÝRSLAN: Arnar Már skaut Skaganum í 8-liða úrslitin

Hvað réði úrslitum?

Líkt og Óli Stefán sagði í viðtali þá vann Skaginn í kvöld að vegna þess að líklega vildu þeir þetta meira. ÍA gerði vel í kvöld. Grindavík voru sterkari í fyrri hálfleik en ÍA gaf fá færi á sér. Skagamenn komu svo flottir út í seinni hálfleikinn á meðan Grindvíkingar voru daprir.

Bestu leikmenn

1. Arnar Már Guðjónsson

Arnar Már skoraði sigurmark ÍA í kvöld og skaut þeim því í 8-liða úrslitin. Utan þess átti hann virkilega góðan leik á miðjunni og hélt annars sterkri miðju Grindvíkinga í skefjum.

2. Einar Logi Einarsson

Átti flottan leik í hjarta varnarinnar en allir varnarmenn ÍA áttu prýðis leik í kvöld og gáfu fá færi á sér.

Atvikið

Sigurmark Arnars. Leikurinn virtist ætla í framlengingu en þá var Arnar Már mættur inn í teiginn, lék á varnarmann Grindavíkur og tæklaði boltann í netið, tveimur mínútum fyrir leikslok við mikinn fögnuð stuðningsmanna ÍA. Eitthvað hefur Jói Kalli líklega fagnað í stúkunni.

Hvað þýða úrslitin?

Það þarf ekkert að flækja þetta. ÍA verður í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit, Grindavík ekki.

Vondur dagur

Ætla nefna einn Skagamann og nokkra Grindvíkinga.

Ragnar Leósson átti alls ekki góðan leik á miðju Skagans í kvöld, og var tekinn útaf í hálfleik. Missti boltann einu sinni á hættulegum stað sem leiddi til marks sem var að vísu dæmt af vegna rangstöðu.

Hjá Grindavík voru nokkrir sem spiluðu undir pari, þá sérstaklega í seinni hálfleik. Menn eins og Will Daniels, Sito, Alexander Veigar, Gunnar Þorsteins, Hewson. Væri alveg hægt að nefna allt Grindavíkurliðið. Alls ekki góðir í seinni hálfleik

Dómarinn - 6

Reyndi nú ekki mikið á Einar. Ágætis flæði á leiknum. Kannski einu broti of fljótur að veifa spjöldunum en ekkert við hann að kvarta.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.