Fotbolti.net
Orri Rafn Sigurðarson
Orri Rafn Sigurðarson
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Samsung völlurinn
Létt gola og sólskin. Gervigrasið lítur alltaf vel út.
Stjarnan
Stjarnan
5 - 0
Þróttur R.
Þróttur R.
Baldur Sigurðsson 36'1 - 0Guðmundur Steinn Hafsteinsson 43'2 - 0Guðmundur Steinn Hafsteinsson 62'3 - 0Guðmundur Steinn Hafsteinsson 80'4 - 0Hilmar Árni Halldórsson 89'5 - 0
Dómari: Bjarni Hrannar Héðinsson

SKÝRSLAN: Kuyt þrenna í Garðabæ í stórsigri Stjörnunar

Hvað réði úrslitum?

Fyrir utan daufustu 25 mínútur sem ég hef séð í fyrri hálfleik tóku Stjarnan öll völd á vellinum og þesi sigur var aldrei í hættu eftir fyrstu 2 mörkin. Varnarleikur Þróttar var oft á tíðum ekki nógu góður og skildu þeir menn eftir galopna í markteignum sínum sem að gaf Stjörnunni auðveld mörk.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Steinn Hafsteinsson (Stjarnan)

Þrenna Dirk Kuyt style öll mörkin voru af stuttu færi eins og Dirk Kuyt gerði gegn Manchester United um árið. Guðmundur Steinn að henda sokka í marga hérna í dag.

2. Sölvi Snær Fodilsson (Stjarnan)

Sá kom geggjaður inn í þennan leik. Síógnandi á hægri vængnum með mikið af lykilsedningum sem að skapa færi. Kæmi mér lítið á óvart ef hann fengi fleiri tækifæri á næstunni eftir þessa frammistöðu

Atvikið

Skellum þriðja markinu hans Guðmundar í atvik leiksins. Alltaf gaman að sjá menn skora þrennur.

Hvað þýða úrslitin?

Stjarnan er komið í 8-liða úrslit Mjólkurbikarsins en Þróttur er fallið úr leik. Þannig eru reglurnar.

Vondur dagur

Jasper Van Der Heyden var bara ekki með í þessum leik ég tók ekki eftir honumffyrr en hann fór útaf ég held það segi allt sem segja þarf.

Dómarinn - 7,8

Hafði góð tök á þessu
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.