Fotbolti.net
Daníel Geir Moritz
Daníel Geir Moritz
16-liða úrslit Mjólkurbikarsins
Origo völlurinn
Rennislétt gervigras, smá vindur og sól á köflum. Tveggja stafa hitatölur og allt hið besta mál.
Valur
Valur
3 - 2
ÍBV
ÍBV
Sigurður Egill Lárusson 6'1 - 01 - 146' Kaj Leo í Bartalsstovu1 - 271' Sigurður Grétar Benónýsson Sindri Björnsson 84'2 - 286' Sindri Snær Magnússon Tobias Thomsen 101'3 - 2
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 458

SKÝRSLAN: Mikið púður bikarmeistara gaf ekkert

Hvað réði úrslitum?

ÍBV var óheppið að vinna ekki í venjulegum leiktíma en eftir að Valur jafnar var þetta eiginlega ekki spurning. Valur átti meira inni og það réði úrslitum.

Bestu leikmenn

1. Sindri Björnsson

Var allt í öllu. Lagði upp, skoraði og fiskaði mann út af. Flottur leikur hjá Sindra sem er heldur betur að minna á sig.

2. Kaj Leo

Var potturinn og pannan í leik ÍBV og skoraði glæsilegt mark.

Atvikið

Sigurmark Thomsen er atvikið. Hann var búinn að vera afleitur í leiknum en dúkkaði upp á ögurstundu.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV ver ekki bikarinn og Íslandsmeistararnir eru búnir að slá út tvö Pepsi lið.

Vondur dagur

Ætlaði að henda þessu á Thomsen en hann kom í veg fyrir það með að klára leikinn. Sindri Snær fær þá þessa nafnbót enda fékk hann rautt og var óvenju klaufskur í sendingum og návígum.

Dómarinn - 5,5

Pétur átti ekki frábæran leik en fær ekki falleinkunn. Misræmi var í framlengingunni og inn á milli benti hann í ranga átt, á kostnað beggja liða.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.