SKÝRSLAN: Elín Metta með tvö í frábærum seinni hálfleik
Hvað réði úrslitum?
Fyrri hálfleikur var jafn og einkenndist af miðjubaráttu. Valskonur urðu fyrir áfalli snemma leiks þegar Pála Marie þurfti að fara af velli eftir harkalegt höfuðhögg. Það virtist slá liðið út af laginu og þær fundu lítinn takt. Það sama má segja um Eyjakonur sem náðu ekki að nýta sína styrkleika og koma lykilmönnum sínum almennilega inn í leikinn. Það varð mikill viðsnúningur hjá Valskonum í síðari hálfleik. Þær mættu miklu öflugri til leiks. Pressuðu grimmt og voru yfir í öllum leikstöðum. Þær voru fljótar að skora fyrsta markið og eftir það var þetta aldrei spurning. ÍBV náði reyndar að minnka muninn undir lokin en Valsliðið var í stuði og slökkti allar vonir um endurkomu með því að svara strax með þriðja marki sínu.
Bestu leikmenn
1. Thelma Björk Einarsdóttir
Thelma Björk stóð sig vel í baráttunni í fyrri hálfleik og var svo í stóru hlutverki í þeim síðari þegar Valskonur tóku yfir leikinn. Var öflug bæði varnar- og sóknarlega og skoraði fyrsta og fallegasta mark leiksins með hörkuskoti.
2. Elín Metta Jensen
Elín Metta skoraði tvö fyrir Val. Það fyrra úr vítaspyrnu. Þriðja vítið sem hún skorar úr í sumar en hún hefur sótt þau öll sjálf. Þá lokaði hún leiknum fyrir Val með þriðja marki liðsins, skömmu eftir að ÍBV hafði náð að minnka muninn. 5 mörk í 5 leikjum hjá landsliðskonunni.
Atvikið
Valskonur byrjuðu seinni hálfleikinn af miklum krafti og brutu ísinn með gullfallegu marki Thelmu Bjarkar. Eftir það var engin spurning hvernig leikurinn færi.
Hvað þýða úrslitin?
Valskonur halda í við toppliðin Þór/KA og Breiðablik. Eru með 12 stig af 15 mögulegum í 3. sæti deildarinnar. Uppskera ÍBV úr þessum fyrstu fimm leikjum er hinsvegar helmingi rýrari. Eyjakonur hafa aðeins náð sér í 6 stig og eru í 5. sæti.
Vondur dagur
Síðari hálfleikurinn var ofboðslega slakur hjá flestum leikmönnum ÍBV. Caroline og Sóley gera stór einstaklingsmistök í aðdraganda Valsmarka tvö og þrjú og deila þessum vafasama titli.
Dómarinn - 7,5
Tríóið var með flest á hreinu. Einhverjir vildu meina að vítaspyrnudómurinn hefði verið harður en Jóhann Ingi var í mun betri stöðu en stúkan til að dæma um það svo hann nýtur vafans.



