SKÝRSLAN: Dramatík í Kópavoginum
Hvað réði úrslitum?
Augnablik fékk mikið af góðum færum í leiknum sem þær náðu ekki að nýta á meðan fékk Tindastóll ekki mikið af færum en þær nýttu þau afskaplega vel. Virkilega flott liðsframviðstaða hjá Tindastól alveg frá Lauren í markinu sem átti virkilega góðan leik og til Murielle sem spilaði vel fremst í liði Tindastóls.
Bestu leikmenn
1. Bryndís Rut Haraldsdóttir
Var virkilega örugg í hafsentinum og svo skemmdi það ekki að hún skoraði markið sem réði úrslitum
2. Krista Sól Nielsen
Var út um allt á vellinum. Var virkilega góð bæði sóknarlega og varnarlega allan leikinn.
Atvikið
Átti Augnablik að fá vítaspyrnu? Svo virtist sem að brotið hafi verið á Ástu inn í teig en dómarinn gaf strax merki um að það væri ekki. Línuvörðurinn var hins vegar betur staðsettur og veifaði hún vítaspyrnu en dómarinn tók ekki mark á því.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin þýða það að Tindastóll er komið áfram í bikarnum og Augnablik er dottið út. Þetta þýðir einnig það að Augnablik er búið að tapa síðustu tveim leikjum
Vondur dagur
Sóknarmenn Augnabliks áttu ekki sinn besta dag í færa nýtingu þar sem þær fengu mörg tækifæri til að skora í leiknum en náðu aðeins að nýta það einu sinni. Þær gerðu vel að koma sér í færin en svo gekk ekki nægilega vel að klára þau.
Dómarinn - 5
Hann átti fínan leik fyrir utan vítaspyrnuatvikið.


