SKÝRSLAN: Breiðablik tóku FH í kennslustund
Hvað réði úrslitum?
Eftir tíðindalítin fyrri hálfleik tóku Breiðablik öll völd á vellinum í seinni hálfleik. Skora fjögur góð mörk sem að er yfirleitt nóg til að vinna fótboltaleiki. Blikar voru miklu duglegri og uppskáru þennan sigur úr því.
Bestu leikmenn
1. Andri Rafn Yeoman
Skorar fyrsta markið sem að var upphafið af martröð FH-inga. Vann eins og brjálæðingur útum allan völl og gaf FH-ingum engan frið.
2. Aron Bjarnason
Skoraði tvö glæsileg mörk og var síógnandi hjá Blikunum. Hér fá Damir og Thomas Mikkelsen einnig shoutout enda báðir frábærir í leiknum.
Atvikið
Þriðja mark Blika var gjöf frá Vigni í marki FH. Var kominn alltof langt útúr teignum og missti boltann klaufalega til Thomas Mikkelsen sem að átti í engum erfiðleikum með að skora í autt markið.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar eru komnir á topp deildarinnar þar sem að Skagamenn töpuðu í Eyjum. Þeir ná þá einnig að slíta sig örlítið frá FH-ingum með sigrinum sem að sitja í 4.sæti með 11 stig.
Vondur dagur
Vignir verður því miður að taka þennan vafasama titil. Virkaði óöruggur í markinu og átti að gera betur í tveimur mörkum Blika. Jákup Thomsen fann sig þá einkar illa í þessum leik.
Dómarinn - 7
Bara fínn leikur hjá Einari. Engar stórar ákvarðanir sem að hann þurfti að taka.



