Fotbolti.net
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Inkasso deildin - 1. deild karla
Þórsvöllur
Þór
Þór
2 - 0
Þróttur R.
Þróttur R.
Alvaro Montejo Calleja 32'1 - 0Sigurður Marinó Kristjánsson 90'2 - 0
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson
Myndir: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

SKÝRSLAN: Liðsheildarsigur hjá Þórsurum

Hvað réði úrslitum?

Eins og segir í fyrirsögninni lék Þór vel sem lið í dag. Leikurinn var frekar jafn framan af og Þór komst yfir þegar jafnvægi var á leiknum. Fyrstu 70 mínúturnar sást ekki mikill gæðamunur en þegar Þróttararnir urður þreyttari í restina var bara tímaspursmál hvenær Þór myndi bæta við öðru marki sem kom svo á 90. mínútu.

Bestu leikmenn

1. Nacho Gil

Nacho var flottur í dag eins og svo oft áður. Vann vel fyrir liðið og sýndi gæði með boltann. Lagði upp bæði mörkin.

2. Sigurður Marínó Kristjánsson

Mér fannst Siggi Marínó vera vaxandi í leiknum og hann fullkomnaði það með marki á 90. mínútu. Alvaro og Jónas áttu einnig góðan leik hjá Þórsurum.

Atvikið

Varslan frá Aroni Birki frá Jasper. Frábær varsla sem hélt Þórsurunum í forystu. Aron með eina alvöru vörslu þegar á þurfti að halda.

Hvað þýða úrslitin?

Þór er komið með níu stig og er aftur á sigurbraut eftir tvo tapleiki fyrir leikinn í dag. Þróttur hefur fjögur stig.

Vondur dagur

Ekkert sem hrópar á mann hvað varðar frammistöðuna.

Dagurinn er auðvitað vondur fyrir Loft Pál sem fór meiddur af velli.

Dómarinn - 6

Kristinn fékk alls ekki auðveldan leik til þess að dæma. Þórsarar eru gjarnir á að tjá sig og reyna hafa áhrif á dómarann. Brotið undir lok fyrri hálfleiks þegar Loftur meiðist sá undirritaður ekki nægilega vel til að dæma um hvort einkunnin eigi að lækka.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.