SKÝRSLAN: Eyjamenn fyrstir til þess að leggja Skagamenn af velli í deildini.
Hvað réði úrslitum?
Eyjamenn höfðu meiri vilja, menn fóru í alla bolta á fullu. Það var ekki einn leikmaður í ÍBV sem nennti þessu ekki. Gaman að horfa á Eyjamenn spila svona.
Bestu leikmenn
1. Víðir Þorvarðarson
Frábær í leiknum og alvöru leiðtogi. Var 100% allan leikinnn og barðist eins og ljón.
2. Óskar Elías Zoega Óskarsson
Flottur í vörnini eins og öll vörn eyjamanna en hann stóð upp úr.
Atvikið
Rauða spjaldið þegar Diogo gefur Halli Flosasyni olnbogaskot og allt verður brjálað, Jói Kalli brunar inn á völlinn og rýkur í mann og annan, var ekki sáttur með brotið á sínum manni.
Hvað þýða úrslitin?
Úrslitin breyta svo sem ekki miklu en ÍBV kemur sér upp úr fallsæti með þessum sigri.
Vondur dagur
Slappur dagur hjá skagaliðinu, voru alls ekki sannfærandi í dag. Ekki líkir sjálfum sér meðan við það að vera taplausir í deildini og misstu hausinn snemma leiks
Dómarinn - 5
Virtist ekki vera með góð tök á leiknum.


