SKÝRSLAN: Varamennirnir hentu Völsurum í botnsætið
Hvað réði úrslitum?
Innáskiptingar Stjörnunnar.
Sölvi lagði á Guðmund Stein sem kláraði á geggjaðan hátt í teignum. Það má líka velta upp hvort Valsarar voru farnir að verja stigið sitt fullmikið undir lok fjörugs leiks.
Sölvi lagði á Guðmund Stein sem kláraði á geggjaðan hátt í teignum. Það má líka velta upp hvort Valsarar voru farnir að verja stigið sitt fullmikið undir lok fjörugs leiks.
Bestu leikmenn
1. Eyjólfur Héðinsson
Eyjólfur stýrði ferðinni á miðjunni í kvöld og átti stóran þátt í fyrsta marki Stjörnunnar með neglu í stöngina af 25 metrum sem að svo hrökk til Þorra. Hann eldist eins og gott rauðvín strákurinn.
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
Margir tilkallaðir í 2.sætið, en við látum Brynjar njóta vafans. Valsarar sköpuðu engin færi utan marksins úr opnu spili og þar var hann hershöfðinginn.
Atvikið
Sigurmarkið stendur upp úr í kvöld, sókn teiknuð upp af æfingasvæðinu. Boltinn færður milli kanta sem endar með flottri fyrirgjöf og gæða afgreiðslu!
Hvað þýða úrslitin?
Stjarnan fer upp í 5.sæti deildarinnar og í efri helminginn á ný eftir tvö töp.
Íslandsmeistarar Vals verða neðstir í landsleikjahléinu sem er framundan!
Íslandsmeistarar Vals verða neðstir í landsleikjahléinu sem er framundan!
Vondur dagur
Halli og Rauschenberg sleppa hér naumlega með því að rúlla inn vængmönnum Valsara.
Þeir voru hreint aldrei líklegir þrátt fyrir að vera með þessa öflugu bakverði með sér og alveg klárt mál að steingeldur sóknarleikur Valsara þarfnast þeirra í miklu meira standi en við sáum í kvöld.
Þeir voru hreint aldrei líklegir þrátt fyrir að vera með þessa öflugu bakverði með sér og alveg klárt mál að steingeldur sóknarleikur Valsara þarfnast þeirra í miklu meira standi en við sáum í kvöld.
Dómarinn - 8,0
Vel dæmdur leikur. Þorvaldur vill láta leikinn ganga en á köflum í leiknum var pínu ósamræmi þar hvenær hann flautaði á litlu brotin og hvenær ekki. Allar stórar ákvarðanir réttar hjá tríóinu.



