SKÝRSLAN: Sjálfsmark Hrannars tryggði KR-ingum stigin þrjú
Hvað réði úrslitum?
Sjálfsmark Hrannars Björns réði einfaldlega úrslitum leiksins í dag. Nokkuð jafn leikur þar sem KA-menn voru kannski örlítið betri. Hefði eflaust endað með jafntefli ef ekki hefði verið fyrir sjálfsmarkið.
Bestu leikmenn
1. Kristinn Jónsson
Var öflugur í dag. Keyrði upp vinstri kantinn hvað eftir annað meðan að jafnt var í liðum og átti margar góðar fyrirgjafir. Þá var hann einnig mjög solid varnarlega.
2. Finnur Tómas Pálmason
Mjög erfitt að taka einhverja í þetta, en ég ætla að gefa Finni þetta. Hann var mjög solid í vörn KR-inga sem hélt hreinu, hefur verið að spila vel þessi ungi strákur sem á framtíðina fyrir sér.
Atvikið
Rauða spjaldið á Kennie Chopart er klárlega atvik þessa leiks. Fyrra gula fékk hann fyrir kjaft þar sem dæmd var aukaspyrna á hann. Seinna gula fær hann fyrir dýfu sem er mjög umdeilanlegt.
Hvað þýða úrslitin?
Að KR-ingar fara upp í 2. sætið, í smá stund að minnsta kosti, með 14 stig, en KA-menn eru áfram með aðeins 9 stig.
Vondur dagur
Hrannar Björn átti ekki góðan dag (var þó alls ekki arfaslakur). Hann sást lítið í fyrri hálfleik og skoraði síðan sjálfsmarkið afdrifaríka í þeim seinni.
Dómarinn - 4
Þjálfararnir voru mjög ósammála með dómgæsluna í dag. Rúnar var mjög ósáttur, en Óli Stefán mjög sáttur. Ég verð að vera sammála Rúnari, mér fannst línan hjá Ívari mjög skrýtin og margar ákvarðanir furðulegar. Hefði getað höndlað bæði spjöldið á Kennie betur.



