SKÝRSLAN: 38 ára Helgi Valur skaut þremur stigum í Árbæinn
Hvað réði úrslitum?
Reynsla og ákafi Fylkismanna réðu úrslitum í dag. Þeir voru undir stóran part leiksins en náðu að snúa taflinu sér í hag í lokin og uppskáru mikilvæg 3 stig.
Bestu leikmenn
1. Helgi Valur Daníelsson
Skoraði 2 mörk og var öruggur á boltann í dag. Virkilega gaman að fylgjast með Helga spila þessa dagana.
2. Kolbeinn Finnsson
Var ógnandi í dag og lagði upp sigurmarkið með frábærri spyrnu.
Atvikið
Atvikið að mínu mati er þegar Björn Berg Bryde fer útaf. Hann var búinn að vera mjög góður í leiknum fram að því. Tek samt ekkert af Fylkismönnum sem gerðu vel að snúa leiknum sér í hag.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir vinnu sinn annan leik í deildinni og getur farið að horfa upp töfluna. HK-ingar sitja eftir í 9. sæti með 5 stig.
Vondur dagur
Aron Kári Aðalsteinsson kom inná fyrir Björn Berg sem meiddist í seinni hálfleik. Hann stóð sig heilt yfir ekki illa en léleg hreinsun hans skóp fyrra mark Fylkis og brot á kantinum skilaði aukaspyrnunni sem Fylkir skoraði annað markið sitt úr.
Dómarinn - 8
Ekki erfiðasti leikur að dæma en hann gerði það vel.



