SKÝRSLAN: Markaregn í Kópavogi
Hvað réði úrslitum?
Blikar voru bara miklu betri í öllum stöðum í dag, voru með boltann meira og minna allan leikinn og sköpuðu stanslaust hættu fyrir framan markið.
Bestu leikmenn
1. Berglind Björg
Hvernig á að velja bara tvær bestar eftir svona leik? Allt Breiðabliks liðið stóð sig frábærlega! Berglind með þrennu og amk eina stoðsendingu. Skapaði auk þess fullt af færum og hélt boltanum vel í fremstu línu. Fékk hinsveg nokkur færi í viðbót sem hún hefði mátt nýta betur.
2. Alexanda Jóhanns
Vann alla bolta sem þurfti að vinna á miðjunni og skapaði fullt af færum fyrir liðsfélaga sína. Oft sú sem byrjaði sóknirnar. Skoraði svo tvö mörk að auki.
Agla María var sömuleiðis frábær áður en hún var tekin af velli.
Agla María var sömuleiðis frábær áður en hún var tekin af velli.
Atvikið
Fyrra mark ÍBV kom eins og þruma úr heiðskíru lofti, smell hitti hann í teignum og skoraði sennilega mark leiksins. Lítið sem Blikastúlkur gátu gert í þessu.
Hvað þýða úrslitin?
Blikar eru komnar þétt upp við hlið Vals og þessa stundina stefnir í hörku baráttu um topp sætið.
ÍBV náðu sér aldrei á strik og er þetta þeirra annað stóra tap í sumar. Það eru einungis tvö stig í botnsætið og því erfiðar umferðir framundan hjá þeim.
ÍBV náðu sér aldrei á strik og er þetta þeirra annað stóra tap í sumar. Það eru einungis tvö stig í botnsætið og því erfiðar umferðir framundan hjá þeim.
Vondur dagur
Vörn ÍBV leit alls ekki vel út í dag, Caroline, Margrét og Mckenzie gerðust allar sekar um stór mistök í vörninni sem kostuðu mörk.
Dómarinn - 7
Það var ósköp rólegt hjá dómarateimi dagsins, en engin vafaatriði sem hægt er að setja út á.



