Fotbolti.net
Lárus Ingi Magnússon
Lárus Ingi Magnússon
Inkasso deildin - 1. deild karla
Nettóvöllurinn
Rigning en logn.
Keflavík
Keflavík
0 - 3
Magni
Magni
0 - 127' Kristinn Þór Rósbergsson 0 - 235' Lars Óli Jessen 0 - 381' Áki Sölvason
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Áhorfendur: ekki vitað

SKÝRSLAN: Magnað í Keflavík

Hvað réði úrslitum?

Fótbolti er oft á tíðum fuðuleg íþrótt. Eitt lið á vellinum sóknarlega allan leikinn en það lið tapaði 0-3. Gestirnir einfaldlega kláruðu þessi fáu færi sem þeir fengu meðan ekkert gekk upp hjá Keflvíkingum. Verður ekki af gestunum tekið að þeir vörðust frábærlega.

Bestu leikmenn

1. Sveinn Óli Birgisson

Frábær leikur hjá fyrirliðanum. Stjórnaði vörninni eins og hershöfðingi og það voru ekki mörg, ef það var einhvert, skallaeinvígið sem hann tapaði.

2. Adolf Mtasingwa Bitegeko

Átti flottan leik á miðjunni hjá Keflavík og ekki við hann að sakast að ekki náðist punktur í hús.

Atvikið

Fyrsta mark leiksins. Keflvíkingar voru búnir að sækja látlaust á vörn gestanna þegar gestirnir duttu í fyrsta sinn nálægt vítateignum. Þá var bara eins og vörn Keflavíkur hefðu ekki trú á því að nokkur hætta gæti skapast og fengu mark í andlitið.

Hvað þýða úrslitin?

Keflvíkingar halda áfram að tapa stigum heima og hafa ekki unnið leik á heimavelli í tvo mánuði og sitja um miðja deild . Magni er enn í fallsæti en hafa jafnað við Njarðvík og sjá aðeins til sólar um stund.

Vondur dagur

Vörn Keflavíkur.
Áttu náðugri dag en oftast í sumar en einhvert einbeytingarleysi og værukærð í þau fáu skipti sem gestirnir fóru út af sínum eigin vallarhelmingi.

Dómarinn - 9

Jóhann Ingi algjörlega með allt á hreinu í leiknum. Fádæma góð dómgæsla. Gæfi honum 10 ef ekki væri fyrir eitt flaut sem hann tók aðeins of snemma, en skipti þó ekki nokkru máli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.