Fotbolti.net
Þórhallur Valur Benónýsson
Þórhallur Valur Benónýsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Extra völlurinn
Grenjandi rigning, grátt og geggjað.
Fjölnir
Fjölnir
3 - 1
Fram
Fram
Guðmundur Karl Guðmundsson 34'1 - 0Jóhann Árni Gunnarsson 52'2 - 02 - 178' Helgi Guðjónsson (víti)Guðmundur Karl Guðmundsson 90'3 - 1
Dómari: Elías Ingi Árnason
Áhorfendur: 219

SKÝRSLAN: Fjölnissigur í toppslag

Hvað réði úrslitum?

Yfirvegun og reynsla Fjölnismanna, þeir spiluðu þennan leik mjög vel og eftir að þeir komust yfir var sigurinn eiginlega aldrei í hættu.

Bestu leikmenn

1. Guðmundur Karl Guðmundsson

Tvö mörk og stoðsending í dag og heilt yfir mjög góð frammistaða hjá miðjumanninum.

2. Atli Gunnar Guðmundsson

Atli var öruggur í öllum sínum aðgerðum í dag og átti auk þess nokkrar frábærar vörslur. Hann var svo alveg í vítinu sem var öruggt svo það dregur hann lítið niður. Flottur leikur hjá honum í dag.

Atvikið

Þriðja mark Fjölnismanna, gestirnir höfðu verið að sækja í sig veðrið en Guðmundur Karl slökkti þann vonarneista með flottu marki.

Hvað þýða úrslitin?

Fjölnismenn styrkja stöðu sína á toppnum í Inkasso deildinni en Framarar falla niður í 5. sæti og þurfa að gefa í ef þeir ætla að eiga möguleika á því að fara upp um deild.

Vondur dagur

Hans Viktor Guðmundsson klúðraði tveimur dauðafærum í stöðunni 0-0, það kom ekki að sök þar sem að aðrir leikmenn nýttu sín færi vel. Hans fer sennilega ekki sáttur á koddann samt sem áður.

Dómarinn - 7

Það er erfitt að meta verk dómarans í kvöld án þess að sjá nokkur atriði aftur. Ef að hann náði öllum vafaatriðunum rétt þá er þetta 9 ef ekki þá er þetta 5. Svo við gefum honum þægilega 7 fyrir að hafa fína stjórn á leiknum þar á milli.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.