SKÝRSLAN: Dýrmæt þrjú stig í toppbaráttunni
Hvað réði úrslitum?
Þetta var hörkuleikur, mikið jafnræði með liðunum sérstaklega í fyrri hálfleik. Þórsarar koma svo dýrvitlausir inn í seinni hálfleikinn og skora mark snemma. Það var það sem skóp þetta að lokum.
Bestu leikmenn
1. Rick Ten Voorde
Rick var virkilega góður fyrir Þór í dag. Skorar sín fyrstu tvö mörk fyrir liðið og það lítur út fyrir að Þór hafi gert ansi vel í glugganum. Mér fannst hann staðsetja sig mjög vel í leiknum og fannst hann líklegur til að bæta við. Ofan á það var hann baráttuglaður.
2. Aliu Djalo
Sá var góður fyrir Njarðvík á miðjunni. Lét finna vel fyrir sér, vann mikið af boltum og hélt flæði í liði Njarðvíkur. Kom boltanum líka vel frá sér.
Atvikið
Mark númer tvö hjá Þór fær þetta verðskuldað. Eftir mjög jafnan fyrri hálfleik, koma Þórsarar sterkir inn í seinni og skora markið nánast strax. Gaf þeim sjálfstraust og setti Njarðvík undir pressu.
Hvað þýða úrslitin?
Þór er áfram í þriðja sætinu með 23 stig og í ljósi úrslita í öðrum leikjum voru þessi þrjú stig þess þá dýrmætari í toppbaráttunni. Njarðvík er áfram í 10. sæti með 10 stig, jafn mörg stig og botnlið Magna og Aftureldingar.
Vondur dagur
Það er ekki hægt að taka nokkurn mann út úr liðunum og segja að þeir hafi átt vondan dag. Ég tel samt Brynjar Atla í marki Njarðvíkur hafa gert mistök í öðru markinu sem Þór skorar. Það er svo markið sem skilur liðin að í dag. Það er alltaf vont en hann var samt góður að öðru leiti og erfitt að henda honum undir vagninn.
Dómarinn - 7,0
Þetta var erfiður leikur að dæma, mikill hiti í mönnum og þeir létu vel finna fyrir sér inn á vellinum. Fannst hann þó halda sömu línu allan leikinn sem er alltaf stór plús. Þegar það sauð upp úr í lok leiks fannst mér hann gera vel í að róa menn niður.



