SKÝRSLAN: Allt annað Víkingslið í dag en frá síðustu umferð
Hvað réði úrslitum?
Það sem að réði úrslitum í dag var bara dagsmunurinn á liðunum. Víkingarnir komu virkilega grimmir í þennan leik eftir sárt tap í síðustu umferð. Varnarleikur heimamanna var gríðarlega sterkur sem og miðja og sókn. Víkingar hefðu getað skorað allavega 3-4 mörk í viðbót en Báðir markmenn Hauka voru virkilega góðir í dag og björguðu sínu liði frá stærra tapi.
Bestu leikmenn
1. Vidmar Miha
Of margir hjá Víkingum sem að koma til greina hér en mig langar að gefa Miha þetta í dag. Var í fyrsta skipti í byrjunarliðinu í dag, skoraði mark, kom sér í góð færi og var skapandi. Var virkilega líflegur á vinstri kantinum þennan klukkutíma sem að hann spilaði.
2. Grétar Snær
Hrikalega flottur í dag. Var nálægt því að skora undir lok leiksins en stöngin þurfti að þvælast fyrir honum.
Atvikið
Vítaspyrnuklúðrið hjá Haukum, hefðu getað jafnað leikinn og fengið einhverja vítamínssprautu jafnvel og við fengið allt annan leik.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingarnir ná að halda sér þarna nálægt toppnum á meðan að Haukarnir eru einu stigi frá botninum.
Vondur dagur
Myndi segja bara allt Haukaliðið kannski fyrir utan báða markmennina sem að áttu margar virkilega góðar vörslur. Haukarnir náðu sér bara engan veginn á strik í dag gegn grimmu og góðu Víkingsliði.
Dómarinn - 7
Var samkvæmur sjálfum sér í dag og leyfði leiknum að fljóta þokkalega.


