Fotbolti.net
Arnar Daði Arnarsson
Arnar Daði Arnarsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Eimskipsvöllurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
0 - 1
Grótta
Grótta
0 - 161' Óliver Dagur Thorlacius (víti)
Dómari: Pétur Guðmundsson
Áhorfendur: 365
Myndir: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

SKÝRSLAN: Þróttarar rændir af Óskari Hrafni og félögum

Hvað réði úrslitum?

Ætli sjálfstraust gestanna hafi skilað þeim þessum sigri og heppnis stimpill sem fylgir því þegar vel gengur? Sveimmérþá. Ekki voru það gæðin í leik Gróttu sem skiluðum þeim þessum sigri, því skal koma á framfæri.

Bestu leikmenn

1. Arnar Þór Helgason

Miðvörðurinn stóri og stæðilegi fær þetta í kvöld fyrir sitt framlag í vörn Gróttu sem hélt hreinu. Heilt yfir var spilamennska leikmanna Gróttu frekar jöfn en Arnar Þór og liðsfélagar hans í vörninni héldu hreinu og því ber að fagna.

2. Daði Bergsson

Langbesti leikmaður Þróttar í leiknum og synd að það hafi ekki skilað neinum stigum fyrir liðið. Hélt boltanum vel, átti nokkra góða spretti upp völlinn og bjó til eitt færi fyrir Jasper uppá sitt einsdæmi.

Atvikið

Óskar Hrafn Þorvaldsson þjálfari Gróttu tók þátt í leiknum af hliðarlínunni. Hann átti bestu snertingu leiksins þegar það kom bolti í átt að honum og hann tók hann á kassann. Óskar Hrafn greinilega ekki búinn að gleyma einu né neinu í boltanum.

Hvað þýða úrslitin?

Grótta er áfram í 2. sæti deildarinnar á meðan Þróttur situr sem fastast í 8. sætinu.

Vondur dagur

Rafael Victor, Van Der Heyden og Daði Bergsson hrista líklega hausinn í kvöld yfir því að hafa ekki náð að koma boltanum framhjá Hákon í markinu og í netið. Rafael fékk nokkur skallafæri og tveir síðarnefndu fengu skotfæri sem hefðu getað endað í marknetinu.

Dómarinn - 8

Ekkert verið að flækja hlutina í kvöld.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.