Fotbolti.net
Egill Sigfússon
Egill Sigfússon
Evrópudeild UEFA - karlar - Evrópukeppni
Origo völlurinn
Léttur vindur en hlýtt veður
Valur
Valur
1 - 1
Ludogorets
Ludogorets
Lasse Petry Andersen 11'1 - 01 - 192' Anicet Abel
Dómari: Georgios Kominis (GRE)
Áhorfendur: 802

SKÝRSLAN: Valur 2 mínútum frá sigri á Ludogorets

Hvað réði úrslitum?

Valsarar voru þéttir allan leikinn, skoruðu gott mark og frábæran varnarleik en þeir gleymdu sér í dekkningunni á 92. mínútu og Ludogorets jafnaði þar með leikinn.

Bestu leikmenn

1. Eiður Aron Sigurbjörnsson

Eiður var stórkostlegur, barðist eins og ljón og kom allri hættu frá marki. Stórleikur hjá Eiði sem bjargaði mörgum góðum færum í kvöld.

2. Sebastian Hedlund

Hedlund var í Hauk Páls hlutverkinu á miðjunni og var mjög góður, vann mörg einvígi og stöðvaði ófáar sóknir í fæðingu. Lagði upp markið með skalla út á Lasse.

Atvikið

Jöfnunarmark Ludogorets.
Allt stefndi í að Valur væri að fara í kjörstöðu í seinni leikinn þegar Ludogorets skoruðu síðan jöfnunarmarkið á 92. mínútu. Kjaftshögg fyrir Valsara.

Hvað þýða úrslitin?

Valur fara til Búlgaríu og þurfa að skora til að eiga möguleika á að komast áfram.

Vondur dagur

Erfitt að velja einhvern hér en set þetta á Iliev markmann Ludogorets.
Hafði lítið að gera í leiknum en er skelfilega staðsettur í marki Vals og gaf bara Lasse nærhornið.

Dómarinn - 5

Dæmdi leikinn ekki vel, alltof spjaldaglaður og dæmdi oft á mjög lítið. Engin stór ákvörðun sem hann þurfti að taka.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.