Fotbolti.net
Þorgeir Leó Gunnarsson
Þorgeir Leó Gunnarsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Varmárvöllur - gervigras
Afturelding
Afturelding
1 - 0
Keflavík
Keflavík
Hafliði Sigurðarson 82'1 - 0
Dómari: Kristinn Friðrik Hrafnsson

SKÝRSLAN: Vinnusigur í Mosfellsbæ

Hvað réði úrslitum?

Þetta var lokaður leikur að mörgu leyti en Afturelding náði inn fyrsta markinu og það reyndist dýrmætt. í heildina sanngjarn sigur þar sem Keflavík tók litla áhættu í leiknum og voru bitlausir fram á við.

Bestu leikmenn

1. Loic Cédric Mbang Ondo

Fyrirliðinn var gríðarlega öflugur í kvöld. Vann mörg návígi og var alltaf réttur maður á réttum stað inn í teig heimamanna. Ondo í þessum ham er einfaldlega frábær leikmaður!

2. Jon Tena Martinez

Spánverjinn stæðilegi í marki Aftureldingar var mjög traustur í kvöld. Greip alla bolta af yfirvegun og varði nokkrum sinnum mjög vel. Virðist ætla að stimpla sig vel inn í liðið.

Atvikið

Markið hans Hafliða í kvöld skildi liðin að og það var svo sannarlega glæsilegt. Fór illa með varnarmann Keflavíkur áður en hann vippaði skemmtilega yfir Sindra í markinu. Jason með góða stoðsendingu.

Hvað þýða úrslitin?

Afturelding fer upp úr fallsæti og ná í þrjú dýrmæt stig. Keflavík fjærlægist toppinn enn frekar og virðist hafa kvatt Pepsi Max drauma sína hér í kvöld.

Vondur dagur

Þetta var vondur dagur fyrir hópinn hjá Aftureldingu. Þrjár skiptingar í fyrri hálfleik hjá heimamönnum sökum meiðsla og nú reynir á breiddina í næstu leikjum.

Dómarinn - 7

Kristinn Friðrik var ágætur í kvöld. Línan pínu skrýtinn í leiknum en annars klikkaði hann ekki á stórum atvikum.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.