Fotbolti.net
Baldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Inkasso deildin - 1. deild karla
Ásvellir
Haukar
Haukar
2 - 1
Fram
Fram
0 - 127' Oliver Helgi Gíslason (sjm)Gunnar Gunnarsson (sjm) 31'1 - 1Birgir Magnús Birgisson 60'2 - 1
Dómari: Gunnþór Steinar Jónsson

SKÝRSLAN: Sjálfsmarkaregn á Ásvöllum

Hvað réði úrslitum?

Haukar kláruðu eitt færi, svo sáu bæði lið um að skora eitt mark fyrir hvort annað...

Bestu leikmenn

1. Birgir Magnús Birgisson (Haukar)

Biggi var hrikalega öflugur í vörn Hauka í dag og skoraði sigurmarkið.

2. Tiago Fernandes (Fram)

Tiago stjórnaði leiknum frá A til Ö en tapaði samt sem áður, hann bjó til allt sem Fram hafði fram á að færa, átti gullsendingar hægri vinstri hingað og þangað, kom sér í færi og var klaufi að skora ekki, langbesti maðurinn á vellinum í dag en Biggi tekur maður leiksins nafnbótina fyrir sitt varnarframlag og sigurmark.

Atvikið

Hér má nefna það að Gulli átti að fá seinna gula spjaldið sitt fyrir að hamra Tiago niður á miðjum vellinum, en það verður hinsvegar að stimpla þetta á vítaspyrnuna sem Jökull Steinn á að fá, að Gunnþór Steinar hafi spjaldað Jökul fyrir dýfu er óskiljanlegt og Haukamenn töluðu um þetta atvik eftir leik þar sem allir eru sammála nema greinilega dómaratríóið.

Hvað þýða úrslitin?

Haukar koma sér í aðeins betri mál en fyrir leik, þeir eru núna fjórum stigum frá fallsæti og geta andað léttar, Fram er á nákvæmlega sama róli með jafn mörg stig en einu slakari markatölu en fyrir leik.

Vondur dagur

Oliver og Gunni Gunn skora sitthvort sjálfsmarkið, Olivers heldur klaufalegra þó en hrikalega vel klárað.

Dómarinn - 1,5

Solid einkunn fyrir mætingu, annars bendi ég bara á smá rant sem ég setti inn í textalýsinguna um miðjan seinni hálfleik og það sem ég skrifa hér fyrir ofan, óþarfi að fara eitthvað nánar út í það öðruvísi en Gunnþór sá mikli toppmaður hefur átt betri dag með flautuna.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.