SKÝRSLAN: Þróttarar sóttu eitt stig til Ólafsvíkur
Hvað réði úrslitum?
Það sem réði úrslitum var að Ólsarar gátu ekki nýtt færin sín í leiknum. Þróttarar komust lítið áleiðis fram á við.
Bestu leikmenn
1. Arnar Darri Pétursson
Varði nokkrum sinnum mjög vel í leiknum og Þróttarar geta þakkað honum fyrir að liðið snúi til Reykjavíkur með eitt stig í farteskinu.
2. Vignir Snær Stefánsson
Hægri bakvörður Ólsara var öflugur og barðist vel í leiknum. Komst mjög vel frá sínu.
Atvikið
Ekkert eitt atvik sem kallar á mann eftir þennan leik. Kannski sterk varsla Arnars Darra í fyrri hálfleik.
Hvað þýða úrslitin?
Liðin skipta stigunum á milli sín. Ólsarar falla niður í 5. sæti og eru að missa af lestinni á toppnum. Þróttarar enn í 8. sæti.
Vondur dagur
Verð eiginlega að setja þetta á fremstu menn hjá báðum liðum. Ólsarar fengu mikið af fínum færum en þeir voru klaufar þegar kom að því að loka dæminu. Að sama skapi var lítið líf í fremstu mönnum Þróttara.
Dómarinn - 8
Ekkert út á breska dómara leiksins að setja. Komst vel frá sínu og hélt góðri stjórn á leiknum. Hann á framtíðina eflaust fyrir sér í bransanum.



