SKÝRSLAN: Leiknismenn sigruðu Njarðvíkurgrýluna loksins
Hvað réði úrslitum?
Leiknismenn voru heilt yfir betri aðilinn í dag og sigurinn sanngjarn en Njarðvíkingar virtust svolítið missa hausinn við vítaspyrnudóminn og þegar þeir virtust vera komast af stað og gera sig líklega þá kemur síðasta smiðshöggið frá Sævari Atla og drepur þetta.
Bestu leikmenn
1. Sævar Atli Magnússon
Var flottur í dag og skilaði af sér mörkin sem skilja liðin af.
2. Stefán Árni Geirsson
Var virkilega flottur í dag. Ógnandi og sótti umdeilt víti sem kom þessu af stað fyrir Leikni.
Atvikið
Vítaspyrnudómurinn.
Toni Tipuric misreiknar bolta innfyrir og missir hann yfir sig þar sem Stefán Árni er mættur og keyrir inn á teig, Toni virðist vera hleypa honum framhja sér og rétt kemur við öxlina á Stefáni Árna sem fellur við og Guðgeir bendir á punktinn.

Hvað þýða úrslitin?
Leiknismenn hoppa yfir Víkinga frá Ólafsvík í bili hið minsta í 4.sætið.
Önnur úrslit dagsins senda Njarðvíkinga undir rauðu línunna.
Önnur úrslit dagsins senda Njarðvíkinga undir rauðu línunna.
Vondur dagur
Toni Tipuric tekur þennan vafasama heiður í dag fyrir hönd varnarlínu Njarðvíkur. Þeir hafa oft átt betri dag en í dag
Dómarinn - 3
Var alls ekki með tök á leiknum í dag. Mikið af tilviljunarkenndum ákvörðum og skrítnum. Gaf ódýrt víti og átti bara ekki góðan dag í dag.