SKÝRSLAN: Enn eitt jafnteflið á Mustad-vellinum
Hvað réði úrslitum?
Það leit út fyrir að bæði lið væru staðráðin í að taka þrjú stig úr þessum leik. Grindavíkurkonur voru áræðnari framan af en um miðbik seinni hálfleiks tóku Augnablikskonur algjörlega yfir og jöfnuðu leikinn.
Bestu leikmenn
1. Shannon Simon
Leggur upp mark Grindavíkurkvenna í dag og er allt í öllu í Grindavíkurliðinu. Spyrnurnar hennar alltaf hættulegar. Hún matar liðsfélaga sína í tíma og ótíma, mögulega þurfa liðsfélagar hennar bara að vera hungraðari.
2. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
Markaskorari Augnabliks í dag. Hún var stöðugt að ógna markinu og skapa fyrir aðra í kringum sig.
Atvikið
Í sókninni sem skilaði markinu hjá Grindavík bjargar Shannon boltanum frá því að fara útaf. Mannskapur sem stóð nálægt hliðarlínunni var nokkuð viss um að boltinn hafi verið farinn. Það hefur annað hvort farið framhjá dómaranum og aðstoðardómaranum eða þeim sem stóðu nálægt þessu skjátlast.
Hvað þýða úrslitin?
Enn skilur eitt stig milli þessara liða en þau færast bæði upp um eitt sæti vegna þess að ÍA tapaði gegn FH í kvöld. Augnablikskonur sitja því nú í 5. sæti með 13 stig og Grindavík í því 7. með 12 stig.
Vondur dagur
Fyrir Mustad-völlinn. Vonandi eru jafnteflisálögin ekki að ná tökum á kvennaliði Grindavíkur líkt og karlaliði félagsins. Áhorfendur fengu þó að sjá tvö mörk í dag sem eru tveimur fleiri en á flestum karlaleikjum í sumar.
Dómarinn - 7
Ágætlega dæmt hjá honum. Flautaði frekar minna en meira sem er oftast jákvætt.



