SKÝRSLAN: Frábær skemmtun í Kaplakrika
Hvað réði úrslitum?
FH stúlkur mættu bara fyrr í leikinn. Fyrstu mínúturnar voru Skagastúlkur ekki alveg vaknaðar og keyrðu FH stelpurnar yfir þær á fyrstu mínútunum sem varð ekki til þess að sjálfstraustið jókst hjá ÍA stelpunum
Bestu leikmenn
1. Birta Georgsdóttir
Var virkilega góð fremst hjá FH. Hún var mjög dugleg að koma sér í færi en hún var einnig frábær í dag að búa til færi fyrir samherja sína. Ekki sakar það að hún hafi skorað fyrsta mark FH
2. Maggý Lárentínusdóttir
Var virkilega örugg í öftustu línu FH. Þegar Skagakonur komust meira og meira inn í leikinn stóð hún eins og klettur í vörninni og hélt rónni í öftustu línu
Atvikið
Annað mark FH. Þá slokknaði pínu á Skagastúlkum og náði FH að auka forrystuna sína enn meira með þriðja markinu sínu sem gerði út um leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
FH situr áfram á toppnum með tveggja stiga forrystu á Þrótt.
ÍA situr í 8. sæti með 11 stig sem eru jafn mörg stig og Fjölnir hefur sem er í fallsæti.
ÍA situr í 8. sæti með 11 stig sem eru jafn mörg stig og Fjölnir hefur sem er í fallsæti.
Vondur dagur
Þeir sem mættu ekki í Kaplakrika í þetta yndislega veður misstu af virkilega skemmtilegum leik. Bæði lið voru virkilega góð stærstan hluta af leiknum. Þetta var virkilega skemmtilegur fótboltaleikur þar sem fótboltinn fékk að njóta sín á glæsilega grasinu hér í Kaplakrika.
Dómarinn - 7
Virkilega flottur leikur hjá honum. Lét leikinn fljóta vel sem gerði hann að mikilli skemmtun.


