Rashford, Fonseca, Moyes, Jorginho, Fati, Lenglet, Amorim, Sterling og Lukaku koma við sögu
Í BEINNI
Lengjudeild karla
Grindavík
LL 2
3
Fjölnir
Víkingur R.
4
1
Breiðablik
Ari Sigurpálsson '18 1-0
Nikolaj Hansen '20 2-0
2-1 Kristófer Ingi Kristinsson '37
Danijel Dejan Djuric '76 3-1
Ari Sigurpálsson '78 4-1
21.04.2024  -  19:15
Víkingsvöllur
Besta-deild karla
Aðstæður: Sól, smá gola en annars bara fínasta veður
Dómari: Vilhjálmur Alvar
Maður leiksins: Ari Sigurpálsson
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth
6. Gunnar Vatnhamar
7. Erlingur Agnarsson
10. Pablo Punyed
11. Gísli Gottskálk Þórðarson ('71)
17. Ari Sigurpálsson ('80)
19. Danijel Dejan Djuric
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen (f) ('67)
24. Davíð Örn Atlason ('80)

Varamenn:
16. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson ('80)
8. Viktor Örlygur Andrason ('71)
9. Helgi Guðjónsson ('67)
12. Halldór Smári Sigurðsson
21. Aron Elís Þrándarson ('80)

Liðsstjórn:
Arnar Gunnlaugsson (Þ)
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Sölvi Ottesen
Rúnar Pálmarsson
Markús Árni Vernharðsson
Aron Baldvin Þórðarson
Óskar Örn Hauksson

Gul spjöld:
Pablo Punyed ('36)
Karl Friðleifur Gunnarsson ('69)
Oliver Ekroth ('69)
Helgi Guðjónsson ('82)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Víkingur vinnur stórslaginn! Fagmannleg frammistaða hjá Víkingum og þeir uppskera sigur á Breiðablik!

Bráðskemmtilegur leikur að baki. Þangað til næst, takk fyrir mig!

Skýrsla og viðtöl á leiðinni!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

90. mín
Maður leiksins Ólafur Jóhannesson valdi Ara Sigurpálsson sem mann leiksins í kvöld. 2 mörk og geggjaður í dag!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

90. mín
+4 í uppbótartíma
90. mín
Gunnar til bjargar! Dagur Örn keyrir upp völlinn og kemur boltanum inn á teiginn. Blikar ná skotið á markið en Gunnar Vatnhamar bjargar Víkingum í annað sinn í leiknum.
90. mín
Blikar eru ekkert líklegir að minnka muninn. Meistaraframmistaða hjá Víkingum í kvöld.
88. mín
Myndasyrpa pt. 2 frá Hafliða Breiðfjörð
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

87. mín
Pablo tekur hornið en Ísak Snær skallar frá.
87. mín
Víkingar að fá hornspyrnu!
86. mín Gult spjald: Patrik Johannesen (Breiðablik)
83. mín
Inn:Arnór Gauti Jónsson (Breiðablik) Út:Alexander Helgi Sigurðarson (Breiðablik)
83. mín
Inn:Patrik Johannesen (Breiðablik) Út:Viktor Karl Einarsson (Breiðablik)
82. mín Gult spjald: Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
Sparkar Alexander Helga niður
80. mín
Inn:Aron Elís Þrándarson (Víkingur R.) Út:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.)
Aron Þrándar að snúa aftur úr meiðslum og spilar sinn fyrsta leik í sumar
80. mín
Inn:Sveinn Gísli Þorkelsson (Víkingur R.) Út:Ari Sigurpálsson (Víkingur R.)
78. mín MARK!
Ari Sigurpálsson (Víkingur R.)
JA. HÉRNA. HÉR. Sá er heitur!

Ég sá ekki hver átti sendinguna á hann en það skiptir engu máli. Hann fær boltann á miðjum vallarhelming Blika og keyrir upp völlinn með boltann áður en hann klárar ekkert eðlilega vel fyrir utan teig Blika. Nánast copy paste frá markinu hans í fyrri hálfleik.

Víkingar að gera út um þennnan leik?!
76. mín MARK!
Danijel Dejan Djuric (Víkingur R.)
Stoðsending: Helgi Guðjónsson
RISAMARK! Eru Víkingar að klára þetta?!

Löng sókn hjá Víkingum sem endar með því að Helgi Guðjóns kemur boltanum fyrir markið. Þar er Djuric mættur og potar boltanum í netið. Spurning hvort þetta hafi veirð sjálfsmark hjá Damir en Djuric fær markið skráð á sig frá mér.

Hann hatar ekki að skora á móti Blikum!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

74. mín
Inn:Ísak Snær Þorvaldsson (Breiðablik) Út:Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
74. mín
Inn:Dagur Örn Fjeldsted (Breiðablik) Út:Aron Bjarnason (Breiðablik)
73. mín
Víkingar sækja! Karl Friðleifur kemur boltanum á Helga Guðjóns sem er aleinn inni á vítateig Blika og fær nægan tíma til að snúa. Hann tekur þá skotið sem fer rétt framhjá markinu.
72. mín
Borðtennis! Liðin skiptast á að sækja þessa stundina. Það liggur mark öðru hvoru megin í loftinu!
71. mín
Inn:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.) Út:Gísli Gottskálk Þórðarson (Víkingur R.)
70. mín
Vatnhamar bjargar Víkingum! Það kemur fyrirgjöf inn á teig Víkinga sem Ingvar missir yfir sig og á Jason sem lúrir á fjærstönginni. Jason tekur skotið á markið en Gunnar Vatnhamar bjargara á línu.
69. mín Gult spjald: Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Ekroth í banni í næsta leik!
69. mín Gult spjald: Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
67. mín Gult spjald: Alexander Helgi Sigurðarson (Breiðablik)
Fór í háskalega tæklingu fyrr í leiknum en Vilhjálmur beytti hagnaði.
67. mín
Inn:Helgi Guðjónsson (Víkingur R.) Út:Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
63. mín
Það er heldur betur byrjað að hitna kolunum hér í Víkinni. Menn að tækla og ýta hvorn annan hægri vinstri og þjálfarar liðanna eru báðir alls ekki sáttir með dómgæsluna.
59. mín
„Litlir hvolpar sem gelta hátt“ Stuðningsmenn Víkinga duglegir að gelta þegar Höskuldur fær boltann.
57. mín
Vel varið! Höskuldur tekur spyrnuna inn á teiginn. Víkingar með misheppnaða hreinsun sem Viktor Örn nær til. Hann nær skotinu sem Ingvar ver vel í markinu.
56. mín
Hornið er ekki gott og Davíð Atla skallar í annað horn
55. mín
Blikar að fá hornspyrnu! Hafa byrjað seinni hálfleikinn mikið betur!
55. mín
Átti markið að standa í fyrri hálfleik hjá Blikum?
53. mín
Inn:Kristinn Steindórsson (Breiðablik) Út:Benjamin Stokke (Breiðablik)
ALexander Helgi og Jason Daði voru búnir að fá eitthvað högg í fyrri hálfleik og ég hélt að annar þeirra væri að fara af velli. Sá Norski fer af velli. Ekki mikið búið að sjást til hans í kvöld.

Kristófer Ingi fer upp á topp og Jason á hægri kantinn.
51. mín
Tæklingar og tæklingar! Það er ástríða í þessu!
49. mín
Leikurinn fer heldur rólega af stað. Smá hiti í þessu, það fer eitthvað að gerast eftir smá og við fáum einhvern algjöran trylling.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn! Heimamenn byrja þetta á ný!
45. mín
Smá myndasyrpa frá Hafliða Breiðfjörð!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

45. mín
Hálfleikur
Mjög skemmtilegur fyrri hálfleikur að baki!

Tökum okkur korterspásu og mætum síðan aftur að vörmu spori!
45. mín
+1 í uppbót Nú skil ég ekki alveg afhverju hann er ekki lengri...
45. mín
Leikurinn hefur róast Eftir mark Blika hafa Víkingar náð að taka stjórnina aftur á leikinn.
44. mín
Karl Friðleifur með hornið sem fer aftur fyrir í markspyrnu.
44. mín
Víkingar fá horn! Djruic með skot í varnarmann og aftur fyrir í horn!
42. mín
Uppstillingarnar Víkingur R. (4-4-2)
Ingvar
Davíð - Ekroth - Gunnar - Karl
Erlingur - Gísli - Pablo - Ari
Djuric - Niko

Breiðablik (4-3-3)
Anton
Höskuldur - Damir - Viktor Ö - Andri
Viktor K - Alexander - Jason
Aron - Stokke - Kristófer

Áhugavert að stundum dettur Jason niður á miðsvæðið en stundum byrjar hann mjög ofarlega. Aron Bjarna er greinilega settur á Karl Friðleif og hann er að spila nánast sem bakvörður að elta Kalla.
37. mín MARK!
Kristófer Ingi Kristinsson (Breiðablik)
Stoðsending: Damir Muminovic
Blikar skora og minnka muninn! Og allt í einu erum við komin í með leik!

Höskuldur tekur spyrnuna. Hann vippar boltanum inn á teiginn en Víkingar skalla frá. En líkt og gerðist fyrir skömmu fær Damir boltann fyrir utan teig Víkinga og er aleinn þar. Hann tekur skotið í fyrsta sem á viðkomu í Kristófer Inga og í netið!

Þetta var búið að liggja í loftinu en leikurinn er hingað til að standast væntingar!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
36. mín Gult spjald: Pablo Punyed (Víkingur R.)
Mjög lengi að dæma þessa aukaspyrnu. Pablo tekur Alexander Helga niður og fær gult.

Blikar með aukaspyrnu á ágætisstað.
34. mín
Pablo með boltann inn á teig Blika sem Viktor Örn skallar frá sýndist mér.
34. mín
Víkingar að fá annað horn! Blikar mjög óöruggir
33. mín
Karl Friðleifur tekur hornið sem Blikar skalla frá.
33. mín
Víkingar að fá horn!
31. mín
MAAARR.... rangur! Hornið kemur inn á teiginn sem Víkingar skalla frá. Boltinn fer út á Damir sem tekur skotið í fyrsta en Ingvar ver boltann út í teiginn. Þar er Kristófer Ingi mættur og kemur boltanum í netið en flaggið var ekki lengi að fara á loft.

Kristófer mjög ósáttur og kvartar og kvartar en dómurinn stendur.
30. mín
Blikar að fá horn!
30. mín
Viktor Karl í dauðafæri! Viktor Karl fær boltann inn fyrir vörn Víkinga og tekur frábærlega á móti boltanum. Hann er þá kominn einn á móti Ingvari en Ingvar ver mjög vel!
Skot?
26. mín
Pablo með hornið og Víkingar eru hársbreidd frá því að koma boltanum í netið eftir sendingu inn fyrir frá Niko á Erling en hann nær ekki til hans. Víkingar vilja annað horn en fá það ekki.
25. mín
Víkingar að fá horn!
24. mín
Eftir frábæra byrjun hjá Breiðablik hafa Víkingar tekist að skora tvö og eru að stýra leiknum núna.

Maður hefur alveg séð þetta áður.
22. mín
Marktilraunir Víkingur 8-2 Breiðablik
20. mín MARK!
Nikolaj Hansen (Víkingur R.)
Stoðsending: Karl Friðleifur Gunnarsson
Þeir skora aftur! Einni mínútu og 40 sekúndum síðar skora þeir aftur!

Karl Friðleifur fær boltann út við hliðarlínu og kemur boltanum inn á teig Blika. Þar stekkur fyrirliðin manna hæst og stangar boltann í netið!

Draumabyrjun Víkinga!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
18. mín MARK!
Ari Sigurpálsson (Víkingur R.)
Víkingar taka forystuna! Ari brýtur ísinn!

Viktor Örn var nýbúinn að brjóta á sér beint fyrir framan fjórða dómarann og Víkingar allt annað en sáttir. Daniel Dejan Djuric er þá með boltann og kemur boltanum inn á teig Blika sem Höskuldur ætlar að skalla frá en boltinn beint til Ara Sigurpálsson. Hann þakkar pent fyrir sig og klárar frábærlega!

Og stúkan tekur við sér!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
17. mín
Pablo tekur núna hornið hinum megin sem fer aftur á Niko Hansen en skallinn fer rétt yfir mark Blika.
16. mín
Annað horn! Karl Friðleifur kemur boltanum á fjærstöngina núna á Niko Hansen sem skallar í varnarmann og aftur fyrir.
15. mín
Annað horn! Karl Friðleifur tekur spyrnuna stutt á Djuric sem kemur honum fyrir markið. Boltinn á viðkomu í Damir og rétt framhjá marki Blika!

14. mín
Veggurinn skallar í horn! Pablo með skotið sem Benjamin Stokke skallar í horn.
13. mín
Víkingar að fá aukaspyrnu á stórhættulegum stað! Erlingur með góðan sprett upp völlinn og nær að sækja í aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Blika!
10. mín
Víkingar vakna! Pablo með volley fyrir utan teig Blika sem Anton Ari ver mjög vel. Skömmu eftir það vinna Víkingar boltann aftur og Gísli tekur skotið inni á teig Blika sem fér rétt yfir markið.
9. mín
Pablo með hornið inn á teiginn en Jason Daði hreinsar fram á Ingvar
9. mín
Víkingar að fá sína fyrstu hornspyrnu!
7. mín
Víkingar með sitt fyrsta skot! Ari Sigurpáls fær boltann út við hliðarlínu og keyrir inn á teiginn. Hann er þá kominn í mjög góða skotstöðu og tekur skotið sem fer rétt framhjá!

Borðtennis!
6. mín
Rétt framhjá! Þeir taka hornið stutt og síðan inn á teiginn. Það myndast mikill darraðardans inni á teig Víkinga áður en Viktor Örn þrumar boltanum rétt framhjá.

Blikar byrja leikinn mikið betur!
5. mín
Blikar að fá horn!
4. mín
Blikar vilja víti! Það kemur bolti inn á teig Blika sem fer á Stokke en Davíð Atla gerir vel og skýlir boltann á Ingvar í markinu.

Blikar vilja víti en það er ekkert í þessu.
1. mín
Blikar byrja af krafti! Löng sending inn fyrir vörn Víkinga í upphafi leiks sem Benjamin Stokke nær til. Hann fer framhjá Ingvari en sendingin inn fyrir er ekki góð og Gunnar Vatnhamar hreinsar.

Blikar byrja af krafti!
1. mín
Leikur hafinn
Þá er þetta byrjað. Það eru gestirnir úr Kópavogi sem byrja leikinn og sækja í áttina áð Víkingsheimilinu.

Ég segi bara agóða skemmtun gott fólk!
Fyrir leik
Styttist Þá ganga liðin til vallar. Það er löngu búið að fylla stúkuna og vonandi fáum við veisluleik!
Fyrir leik
Korter í leik, liðin og dómarar ganga til búningsherbergja og gera sig klár í slaginn.
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi! Þrátt fyrir að 1-0 sigur í seinasta leik gegn Fram er óhætt að segja að Víkingar áttu alls ekki góða frammistöðu í þeim leik. Þeir voru hreinlega heppnir að hafa náð í 3 stig . Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, gerir einungis tvær bryetingar á Víkingsliðinu frá sigrinum gegn Fram. Helgi Guðjónsson og Valdimar Þór Ingimundarson koma úr byrjunarliðinu en þeir Nikolaj Hansen og Daniel Dejan Djuric koma inn í liðið.

Gestirnir úr Kópavogi hrófla lítið í liðinu frá 4-0 sigrinum gegn Vestra. Þeir gera alls tvær breytingar frá þeim leik en þeir Alexander Helgi Sigurðarson og Kristófer Ingi Kristinsson koma inn í liðið fyrir þá Kristinn Steindórsson og Arnór Gauta Jónsson.
Fyrir leik
Ertu ekki að hlusta? Ég mæli með að fólk stilli á útvarpsþáttinn frá því í gær, þar sem Halli Hróðmars var gestur, og seinasta þátt af Innkastinu til að hita sig aðeins upp fyrir stórleikinn!
Fyrir leik
Ný skák Nú hefst ný skák, skák þeirra Arnars Gunnlaugssonar og Halldórs Árnasonar. Koma þeir okkur á óvart í kvöld?
Svona líta líklegu byrjunarlið .net út:

Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Mynd: Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fyrir leik
Dómarateymið Við erum held ég að fara að fá mjög vel dæmdan leik á morgun. En dómari leiksins er Vilhjálmur Alvar með þá Kristján Má Ólafs og Gylfa Má Sigurðsson sér til aðstoðar. Elías Ingi verður með skiltið á hliðarlínunni en Kristinn Jakobsson með stílabókina í stúkunni. Þess má geta að Vilhjálmur Alvar dæmdi leik liðanna í Víkinni í fyrra.

Tölfræði Vilhjálms í efstu deild
Leikir: 193
Gul spjöld: 825
Rauð spjöld: 40
Dæmdar vítaspyrnur: 59
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Fyrrum fyrirliði Víkinga spáir í spilin Nýjasti leikmaður kvennaliðs Vals og fyrrum fyrirliði Víkinga, Nadía Atladóttir, spáði í spilin fyrir 3. umferð Bestu deildar karla á dögunum.

Víkingur R. 4 - 2 Breiðablik (19:15 í kvöld)
Langar að segja Breiðablik en ég sé ekki Víkingana misstíga sig, þeir eru of vel spilandi þessa dagana. Þetta verður vel spilaður markaleikur sem endar 4-2.
Fyrir leik
Mörkin úr leikjunum
Fyrir leik
Leikirnir í fyrra Það hefur svo sannarlega gengið mikið á milli Víkings og Breiðabliks í undanförnum leikjum. Leikirnir í fyrra voru svo sannarlega skemmtilegir og líflegir innan sem utan vallar.

Í fyrsta leik liðanna í fyrra voru Víkingar 2-0 yfir í hálfeik og þegar klukkan sló 90 mínútur en á einhvern ótrúlegan hátt tókust Blikunum að redda stigi úr leiknum. Í lok leiks sauð allt upp úr en þjálfarar og leikmenn liðanna voru svo sannarlega heitt í hamsi í viðtölum eftir leikinn. Hér má sjá viðtöl .net úr leiknum í fyrra á Kópavogsvelli.
Rútuleikurinn
Í seinni leik liðanna fyrir tvískiptinguna fengu Víkingar Breiðablik í heimsókn. Nema Blikarnir mættu bara dálítið seint í heimsóknina. En sá leikur og allt sem átti sér stað í kringum hann fer seint úr manna minnum. Þetta var stórfurðulegur leikur. En Blikarnir mættu í rútu þegar það var mjög stutt í leik, fóru aldrei inn í klefann, spiluðu með hálfgert varalið og skiluðu engri leikskýrslu nema þegar það var stutt í leik. Fólk skiptist síðan auðvitað á skoðunum um þessa frægu rútuferð. Var þetta nett? Var þetta barnalegt?
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Liðin fara vel af stað Það er held ég alveg óhætt að segja það að Víkingur og Breiðablik hafa byrjað leiktíðina með glæsibrag en bæði lið eru með fullt hús stiga og eiga enn eftir að fá á sig mark. Verða þetta liðin sem munu berjast um skjöldin í sumar?

Svona lítur sú lang besta út þegar 3. umferðin er hálfnuð:

1. Breiðablik 6 stig
2. Víkingur 6 stig
3. KR 6 stig
4. Fram 6 stig
5. FH 6 stig
6. Valur 4 stig
7. ÍA 3 stig
8. Stjarnan 3 stig
9. Fylkir 1 stig
10. KA 1 stig
11. HK 1 stig
12. Vestri 0 stig
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Klárum þetta með stæl! Heilir og sælir ágætu lesendur og verið hjartanlega velkomin í þessa þráðbeinu textalýsingu úr Víkinni. Lokaleikur 3. umferðar Bestu deildarinnar er enginn smá leikur. Tvö bestu lið landsins mætast í klárlega leik ársins hingað til í Íslenska fótboltanum. Ég segi bara spennið sætisbeltin gott fólk því þetta verður algjör veisla!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Anton Ari Einarsson (m)
4. Damir Muminovic
6. Alexander Helgi Sigurðarson ('83)
7. Höskuldur Gunnlaugsson (f)
8. Viktor Karl Einarsson ('83)
11. Aron Bjarnason ('74)
14. Jason Daði Svanþórsson
20. Benjamin Stokke ('53)
21. Viktor Örn Margeirsson
23. Kristófer Ingi Kristinsson ('74)
30. Andri Rafn Yeoman

Varamenn:
12. Brynjar Atli Bragason (m)
2. Daniel Obbekjær
9. Patrik Johannesen ('83)
10. Kristinn Steindórsson ('53)
16. Dagur Örn Fjeldsted ('74)
22. Ísak Snær Þorvaldsson ('74)
24. Arnór Gauti Jónsson ('83)

Liðsstjórn:
Halldór Árnason (Þ)
Marinó Önundarson
Særún Jónsdóttir
Eyjólfur Héðinsson
Haraldur Björnsson
Eiður Benedikt Eiríksson
Helgi Jónas Guðfinnsson

Gul spjöld:
Alexander Helgi Sigurðarson ('67)
Patrik Johannesen ('86)

Rauð spjöld: