Byrjunarlið Víkings og Breiðabliks: Tvær breytingar hjá báðum liðum - Fyrirliðinn byrjar í fyrsta sinn á tímabilinu


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir


Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir
Eftir rúman klukkutíma hefst stórleikur 3. umferðar í Bestu deildinni þegar íslands- og bikarmeistarar Víkings fá Breiðablik í heimsókn. Flautað verður til leiks klukkan 19:15 en leikurinn er spilaður á heimavelli hamingjunnar í Víkinni.
Þrátt fyrir 1-0 sigur í seinasta leik gegn Fram er óhætt að segja að Víkingar áttu alls ekki góða frammistöðu í þeim leik. Þeir voru hreinlega heppnir að hafa náð í 3 stig . Arnar Gunnlaugsson, þjálfari Víkinga, gerir einungis tvær bryetingar á Víkingsliðinu frá sigrinum á Fram. Helgi Guðjónsson og Valdimar Þór Ingimundarson koma úr byrjunarliðinu en þeir Nikolaj Hansen og Daniel Dejan Djuric koma inn í liðið.
Gestirnir úr Kópavogi hrófla lítið í liðinu frá 4-0 sigrinum gegn Vestra. Þeir gera alls tvær breytingar frá þeim leik en þeir Alexander Helgi Sigurðarson og Kristófer Ingi Kristinsson koma inn í liðið fyrir þá Kristinn Steindórsson og Arnór Gauta Jónsson.
Byrjunarlið Víkingur R.
Ingvar Jónsson, Peter Oliver Ekroth (fyrirliði), Gunnar Vatnhamar, Erlingur Agnarsson, Pablo Oshan Punyed Dubon (fyrirliði), Gísli Gottskálk Þórðarson, Ari Sigurpálsson, Danijel Dejan Djuric, Karl Friðleifur Gunnarsson, Nikolaj Andreas Hansen, Davíð Örn Atlason
Byrjunarlið Breiðablik
Anton Ari Einarsson, Alexander Helgi Sigurðarson, Höskuldur Gunnlaugsson, Viktor Karl Einarsson, Aron Bjarnason (fyrirliði), Jason Daði Svanþórsson, Benjamin Stokke, Viktor Örn Margeirsson, Kristófer Ingi Kristinsson, Andri Rafn Yeoman, Damir Muminovic



