Ísland
0
0
Úkraína

14.04.2026 - 18:30
Laugardalsvöllur
Undankeppni HM kvenna
Dómari: Shona Shukrula (Holland)
Laugardalsvöllur
Undankeppni HM kvenna
Dómari: Shona Shukrula (Holland)
Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
Fyrir leik
Shona úr hollensku sögubókunum
Dómarateymið í kvöld kemur að mestu frá Hollandi. Shona Shukrula er aðaldómari en hún afrekaði það 2024 að vera fyrsta konan til að dæma atvinnumannaleik í karlaflokki í hollenska boltanum. Löndur hennar Isabelle van Gilst aðstoðardómari og Marisca Overtoom fjórði dómari eru einnig í teyminu en hinn aðstoðardómarinn kemur frá Austurríki og heitir Amina Gutschi.

Viðtöl í aðdraganda leiksins
Fyrir leik
Af hverju er þessi leikur svona mikilvægur?
Fyrirkomulagið í undankeppninni er þannig að efsta liðið í riðlinum fer beint í lokakeppni HM en hin liðin þrjú fara í umspil. Öll liðin í riðlinum eru í A-deild Þjóðadeildarinnar og hafa því þannig unnið sér inn þátttökurétt í umspili.
Það eru talsvert miklar líkur á því að Ísland fari í umspilið þar sem riðillinn er það erfiður. Í umspilinu verður barist um sjö laus sæti í lokamótinu.
Umspilið skiptist í tvær umferðir og verður leikið heima og að heiman í báðum umferðum.
Liðin sem enda í öðru og þriðja sæti í riðlinum sínum í A-deild fara í leið eitt og byrja á því að mæta liðum úr C-deild í fyrstu umferð. Liðin sem enda í fjórða sæti í riðlunum í A-deild fara í leið tvö og byrja á því að mæta liðum úr B-deild.
Sextán lið komast áfram úr umferð eitt og mætast svo. Liðin úr leið eitt dragast gegn liðum úr leið tvö. Það er því mjög mikilvægt að enda í öðru eða þriðja sæti í riðlinum til að eiga betri möguleika á að komast í lokakeppnina. Segja má að helsta barátta Íslands í riðlinum sé gegn Úkraínu og það eru leikir sem við verðum að byrja á því að vinna.
Það munu átta lið standa uppi sem sigurvegarar í umspilinu en þau sjö lið enduðu með bestan árangur í heildartöflu undankeppninnar komast inn á lokakeppnina. Áttunda sigurliðið í umspilinu, sem var með lakastan árangur í undankeppninni, fer í annað umspil á móti þjóðum úr öðrum heimsálfum.
Leikirnir gegn Úkraínu verða hins vegar risastórir upp á það að eiga sem bestan möguleika á að komast í lokakeppni HM. Það er nefnilega, eins og áður kemur fram, mjög mikilvægt að stelpurnar okkar endi í að minnsta kosti þriðja sæti riðilsins.

Eru án stiga
Stelpurnar okkar eru án stiga eftir fyrstu leiki riðilsins, útileiki gegn Englandi og Spáni sem eru tvö af sterkustu landsliðum heims. Úkraína er einnig án stiga eftir leiki gegn sömu liðum.

Byrjunarlið:
Varamenn:
Liðsstjórn:
Gul spjöld:
Rauð spjöld: